Úrval - 01.03.1970, Page 17
RÓLYNDUR Á HVERJU SEM GENGUR
15
Rogers a Junai meö JMixon og JXissmger, nanasta aðstoðarmanni hans, sem
rœtt var um í grein í desemberheftinu.
nafni, kosinn saksóknari í New
York Hann var þegar orðinn þekkt-
ur fyrir baráttu sína gegn skipu-
lagðri glæpastarfsemi. Dewey hóf
þá tafarlaust herferð gegn ýmsum
þeim glæpamönnum, sem stjórnuðu
hinni skipulögðu glæpastarfsemi.
Hann þarfnaðist að sjálfsögðu
margra aðstoðarmanna og auglýsti
eftir 50 lögfræðingum. 8000 lög-
fræðingar sóttu um að fá að starfa
fyrir Dewey, og líklega hefur Bill
Rogers verið sá yngsti þeirra. De-
wey sagði ákveðínn, að hann væri
að leita að revndum lögfræðingum.
„ffig skal vinna kauplaust," svaraði
Bill þá. „Ég skal taka fé að láni til
þess að sjá fjölskyldu minni far-
borða. Ég vil afla mér þeirrar
reynslu, sem fæst með því að vinna
fyrir yður.“ Dewey brosti við og
veitti honum starfann . . . með
þeim launum, sem honum áttu að
fylgja. Og það leið ekki á löngu,
þangað til Rogers var farinn að
starfa sem ákærandi í þýðingar-
miklum málum.
í SVIÐSLJÓSI ÞJÓÐMÁLANNA
Eftir árásina á Pearl Harbor bauð
Rogers sig fram til flotaþjónustu og
tók þátt í sjóorrustum sem einn af
áhöfn USS Interp'd ((Æðrulaus) á
Kyrrahafssvæðinu. Að styrjöldinni
lokinni sneri harn aftur til starfs
síns í skrifstofu saksóknara New
York. En árið 1947 sótti hann um
starf sem ráðgjafi á vegum Stríðs-
rekstrarrann sóknarnefndar öldunga-
deildar þingsins. Með hjálp aðstoð-
armanna sinna kom Rogers upp um
margs konar misferli, svo sem mút-