Úrval - 01.03.1970, Síða 20
18
ÚRVAL
enn svo slæmt og stöðugt má bú-
ast við vopnuðum átökum á sam-
eiginlegum landamærum ríkjanna.
. . . í öðru lagi er það sífellt að
verða erfiðara fyrir Rússa að hafa
taumhald á leppríkjum sínum. Nú
hafa þeir veigamikla ástæðu til þess
að efast um. að lönd þau, sem að-
ild eiga að Varsjárbandalaginu,
mundu reynast traust og áreiðan-
legt afl, ef til átaka kæmi milli
Sovétríkjanna og Vesturveldanna.
. . . í þriðja lagi hefur stuðning-
ur við minni háttar ný kommún-
istaþjóðfélög reynzt vera áhættu-
söm og dýr fyrirtæki. Stuðningur
Rússa við Kúbu kostar þá milljón
dollara á dag. Kúba hefur reynzt
Rússum hörmulegt áfall. Rúblur
þær, sem þeir hafa eytt í Indónesíu
og Afríku, hafa jafnvel gert þeim
ógagn og leitt af sér dýr mistök.
. . . í fjórða lagi hefur Rússland,
sem tekur þátt í örvæntingarfullu
kapphlaupi við Bandaríkin, hvað
snertir hernaðarmátt og geimvísindi,
vanrækt að uppíylla grundvallar-
þarfir íbúa sinna fyrir fæði, hús-
næði, flutningatæki og alls konar
neyzluvörur, sem þjóðin þráir heitt.
Það hefur því myndazt vaxandi
spenna í Sovétríkjunum, og Sovét-
ríkin þarnast því tímabils betri
samskipta við aðrar þjóðir til þess
að koma innanríkismálum sínum í
lag.
Því álítur Rogers, að hinar hörðu
staðreyndir, sem Rússar verða að
horfast í augu við, hvað snertir eig-
in aðstæður, hafi smám saman þau
áhrif, að það skapist annað and-
rúmsloft á sviði utanríkismála.
Hann er sannfærður um, að þolin-
mæði og róleg viðbrögð af okkar
hálfu kunni að lokum að bera full-
komirin ávöxt. Þegar Norður-Kór-
eumenn skutu niður eina af raf-
eindakönnunarflugvélum okkar yfir
Japanshafi í apríl síðastliðnum,
hringdi Rogers strax í Dobrynin
sendiherra. Innan tveggja tíma voru
rússnesk skip farin að hjálpa til við
leitina að hinni týndu flugvél. Það
hafa komið fram a.ðrar vísbending-
ar um vinsamlegri afstöðu Rússa
undanfarið, en sumar þeirra er ekki
enn hægt að opinbera.
BJARTS^NI EINKENNIR HVÍSL
AÐ TJALDABAKI
Bandaríkin og Sovétríkin hafa
þegar byrjað viðræður um hugsan-
legar leiðir til þess að koma á friði
við botn Miðjarðarhafsins, einni
helztu púðurtunnu heims. Að vísu
hafa viðræður þessar og samninga-
umleitanir enn ekki borið árangur,
en samt álítur Rogers, að Sovét-
menn kunni í einlægni að æskja
friðar á þessu sviði.
Hann er einnig vongóður um, að
viðræður við Sovétríkin um tak-
mörkun vopnabúnaðar og eftirlit
með slíku og sérstaklega um leiðir
til þess að hindra, að kjarnorku-
vopn eflist og þau breiðist út um
allar jarðir, kunni að leiða til ein-
hvers konar samkomulags fyrr eða
síðar. Hann hefur auðvitað áhyggj-
ur af vaxandi flotaveldi Rússa, eink-
um á Miðjarðarhafinu, og af nýaf-
stöðnum tilraur.um Sovétríkjanna
með SS-9 flugskeyti af nýrri gerð.
Af þeim ástæðum er hann ánægður
yfir því, að Bandaríkj aþing hefur
nýlega samþykkt. að haldið skuli