Úrval - 01.03.1970, Page 23
Viltu auka ordaforda f þinn ?
Hér fara á eftir 20 orð og orðasambönd með réttri og rangri merkingu.
Prófaðu kunnáttu þína í islenzkri tungu og auk þú við orðaforða þirun með
þvi að finna rétta merkingu. Gæt þess, að stundum getur verið um fleiri en
eina rétta merkingu að ræða.
1. Að láta með beini ganga: að sýna örlæti, að sýna nízku, að beita hörðu,
að láta undan, að skera sig eða stinga sig inn í bein, að vera hnarreistur.
2. brigðmáll: ræðinn, óorðheldinn, mjúkur á manninn, kjöftugur, viðskota-
illur, móðgunargjarn, langorður, orðfár.
3. að hvirfla: að þyrla, að standa á höfði, að hnúast í hring, að skipta um
skoðun, að hverfa, að klöngrast, að detta endilangur.
4. að hafa hönd i grýtu með e-m: að sýna e-m yfirgang, að bregðast e-m,
að hjálpa ejm, að nú e-m, að sýna e-m óþarfa afskiptasemi, að vantreysta
e-m, að bera óvildarhug til e-s.
5. að morkna: að þrána, að meyrna, að þorna, að blotna, að úldna, að
harðna, að gorta, að óhreinkast, að vip.dast.
6. ótyrming: miskunnarleysi, vorkunnsemi, urmull, vanstilling, vanþrif, ögn.
7. að terrast upp á e-u: að hætta við e-ð, að byrja á e-u, að gangast upp
■við e-ð, að guggna á e-u, að stælast við e-ð, að príla uppi á e-u.
8. að tvínóna: að sitja hest ásamt öðrum, að draga, að dunda, að hika, að
tvístíga, að endurtaka, að staglast á e-u, að slóra, að sofa langt fram á dag.
9. makráður: værukær, eirðarlaus, svangur, matgírugur, latur, undirförull,
ráðagóður, einlægur.
10. að láta ekki á sér kræla: að hafast ekki að, að láta ekki á sig fá, að
vera alveg sama um, að gefa ekki höggstað á sér, að hreyfa sig ekki,
að láta ekki blekkja sig, að láta ekki á neinu bera, að láta sér ekki segjast.
11. trauðla: vaaidlega, með erfiðismunum, auðveldlega, ílát, áhald, varla,
algerlega, að nokkru leyti.
12. slunkur: ruddi, sóði, vfirgangsseggur, bleyða, iæ.vís maður, dynikur,
slatti, st.ór og feitur maður.
13. yrgjur: lýs, flær, úlfúð, hrufur eða ójöfnur (á hreistri), kláði, deilur,
úfinn sjór, kambar, spennur.
14. ótrauður: eldrauður, .hikandi, fús, einbeittur, lævís, hreinlyndur, æstur,
rólegur, erfiður, auðveldur, djarfur.
15. slumbra: demba, sletta, blundur, skass, kjaftakind, hellirigning, undir-
alda, brotsjór.
16. væringar: norrænir menn í þjónustu keisarans í Miklagarði, deilur, óþrif,
sættir, leti, ágreiningur, friður.
17. gorpa: mont, lota, vindur, smásilungur, ismáufsi, skordýr, fugl, kuldi,
18. að haska sér: að herða upp hugann, að aka sér, að ákveða sig, að flýta
sér, að æsa sig upp, að hreyfa sig, að leggja sig í hættu.
19. að slytta: að vaxa, að kasta, að minnka, að slota, að snjóa, að rigna,
að hætta, að Ijúka.
20. að krakka: sagt um það, sem urmull er af, að barna, að sjóða, að slæða,
að krafsa, að stjaka við, að skafa.