Úrval - 01.03.1970, Page 33

Úrval - 01.03.1970, Page 33
TURGENEV OG TOLSTOY 31 Kemur þú til Tula eða á ég að koma til Jassnai Poliana?" Nokkrum dögum síðar sendi Turgenev okkur boð þess efnis, að hann ætlaði að aka frá Tula til Jassnaia. Faðir minn fór sjálfur til Tula til að taka á móti honum. Engar heimildir eru nú til um þennan fyrsta fund þeirra eftir sautján ára aðskilnað, eða nein vitneskja um það sem þeim fór á milli á þessari hálfrar annarrar klukkustundar ferð frá Tula til Jassnaia. Það má hinsvegar geta sér til þess að fundur þeirra hafi verið ástúðlegur og báðir hafi forð- azt, að minnast á nokkuð það, er gæti valdið misklíð. Við biðum komu Turgenevs með mikilli eftirvæntingu. Ég vissi, að hann var hár vexti, en hann var miklu stærri en ég hafði búizt við. í mínum augum var hann risi — risi með góðleg augu. Hann var digur, vöðvarnir hvaplegir, rjóður í andliti, hárið snjóhvítt og skegg- ið sömuleiðis. Faðir minn virtist lágvaxinn í samanburði við hann, þótt hann væri meira en meðal- maður á hæð. En hann var talsvert unglegri í útliti, enda var Turgenev sextugur, en hann fimmtugur. Turgenev var orðinn gáhærður eins og áður er sagt, en faðir minn hélt enn dökku hári sínu. f samskiptum þeirra fannst glöggt, að Turgenev var eldri. Mér virtist framkoma föður míns gagnvart honum ein- kennast af kurteisi og virðingu, en ofurlitlum fáleikum, en Turgenev hins vegar sýna stöðuga gætni og varúð í skiptum við föður minn. Turgenev hafði meðferðis ýmsa hluti, sem voru ævintýralegir í okk- ar augum: dýra ferðatösku úr leðri, glæsileg samkvæmisföt, tvo bursta úr fílabeini og fleira. Ég man einn- ig eftir flauelsfrakkanum hans og vesti úr sama efni, silkislifsi, mjúkri silkiskyrtu og tveimur gullúrum, sem hann bar. Hann hafði ánægju af að sýna þessi úr, sagði að þau væru krónometer, að hann hefði mikið dálæti á góðum úrum og að hann liti oft á þau til þess að gæta að, hvort þau mældu tímann jafnt og réttilega. Hann hafði einnig í vasa sínum forkunnarfagrar tó- baksdósir. Hann sagði okkur, að hann hefði hætt að reykja, þegar tvær franskar fegurðardísir neituðu að kyssa hann, af því að hann reykti. — Og nú, bætti hann við, — nú leyfa Parísarmeyjarnar mér jafn- vel ekki að taka í nefið. Turgenev átti langar viðræður við föður minn bæði á vinnustofu hans og gönguferðum þeirra. Ég tel víst, að umræðuefni þeirra hafi fyst og fremst verið bókmenntir. Turgenev fylgdist mjög vel með því, sem var að gerast á þessu sviði. Ég man eftir því, að í þetta skipti mælti hann sérstaklega með tveimur rithöfundum við föður minn. Annar var rússneskur, Ger- shin, hinn franskur, Maupassant. Þegar faðir minn hafði kynnt sér þessa höfunda, virti hann þá báða mikils og hann sagði oft, að Mau- passant væri í hópi hinna beztu. Ég held að það hafi einnig verið í' þetta sinn, sem Turgenev mælti með skáldkonu nokkurri, Madame
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.