Úrval - 01.03.1970, Page 38
36
Kvennabærinn Bousbirs
Það er auðvelt
fyrir unga Arabakonu
að komast inn fyrir múra
Bousbirs í Casablanca,
en erfiðara að sleppa þaðan
lít aftur.
borginni Casablanca í
Marokkó, -— en raun-
ar heitir borgin á ara-
bisku Dar-el Beida, —
eru þrjú gagnólík
hverfi: Gamla miðborgin þar sem
götur eru krókóttar, skúmaskot
mörg og allt iðar af lífi, svo er nýja
borgarhverfið: þar, sem
götur eru beinar og breið-
ar og pálmatré gróðursett
meðfram gangstígum, þar
eru einnig nýtízku hótel
og ýmsar aðrar fagrar
byggingar, og svo að lok-
um er „lokaða borgin“
sem opinberlega heitir
Bousbir.
Þetta hverfi er reyndai'
stunduð kallað „kvenna-
borgin“, því þetta er all-
stórt svæði, sem umkringt
er háum múr á alla vegu.
Að baki þessum múr búa
600 konur við illan aðbún-
að. Konurnar eru að af-
plána dóma fyrir afbrot,
sem þær hafa framið. Eng-
in þeirra sleppur út fyrr
en hún hefur afplánað
refsingu sína að fullu, og
greitt sekt sína.
Inngangurinn í þessa
lokuðu borg er aðeins
glufa á múrnum, sem um-
lykur hana. Glufan er svo
mjó, að það verður að
skáskjóta sér í gegnum
— Aktuelt —