Úrval - 01.03.1970, Page 62
60
Þunglyndið ásækir fólk mest eftir 30 ára aldurinn ocj sérstaklega
á tímabilinu 40 til 60 ára.
Vægt
þunglyndi og meðferð
þess
|vað hafið þér séð marga
sjúklinga svipaða þess-
um? -
— Þreytulegur maður
um fimmtugt kemur
inn og kvartar um verki í brjósti,
krampa í kviðarholinu, bakverki og
dofa í tám og fingrum. Hann segist
stundum vera með svima. Líkamleg
rannsókn leiðir ekkert í ljós nema
hvað hann hefur létzt upp á síð-
kastið. Hann segist hafa tapað 15
pundum og viðurkennir að hann sé
lystarlaus. Hann kveðst hafa misst
áhugann fyrir öllu, konunni, vinn-
unni og öllum fyrri áhugamálum.
f--------------------------------n
Þessi athyglisverða grein er
skrifuð fyrir lækna af Frank
I. Ayd jr. og lýsir mynd hins
vœga þunglyndis og hvernig
hægt er að sigrast á því.
V________________________________)
Og hann vaknar miklu fyrr en
venjulega, allskonar leiðindahugsan-
ir sækja á hann. Hann hefur, að því
er virðist glatað öllu sjálfstrausti.
Nei, eiginlega ekkert sérstakt að;
hann óttast aðeins, að hann sé að
missa heilsuna eða stöðuna. „Ef til
vill þyrfti ég að fá góðar svefnpill-
ur,“ segir hann með dapurlegu brosi.
Kona 22ja ára, sem er nýbúin
að eignast annað barnið, getur
ekki lengur unnið heimilisverkin
vegna þrekleysis í fótum og baki.
Móðir hennar hafði dvalizt hjá
henni til aðstoðar, þegar fyrra barn-
ið fæddist, en nú var hún alvarlega
veik. Sjúklingurinn segist vera nán-
ast eðlilegur og heilbrigður að
kvöldinu, en síkvíðin og andvaka
framan af nóttu, og henni verður
óglatt og tárast við morgunverðinn.
Hún fær roðauppþot á hálsinn og
bringuna og er að mestu hætt að
borða. Maðurinn hennar hefur þrá-
beðið hana að fara í allsherjar
— Fréttabréf um heilbrigðismál, stytt —