Úrval - 01.03.1970, Page 69
67
fíver hefur svikið unga fólkið? Eru það foreldrarnir, skólakerfið
eða kirkjan?
Eitthvað
sem unga
trúað á
fólkið getur
Eftir BILLY GRAMAM
skumenn nútímans er
bezt menntaðasta kyn-
slóð sögunnar. Hún er
einnig sú gáfaðasta og
bezt setta kynslóðin.
Hvers vegna býr hún þá yfir þessu
friðleysi. Hvers vegna er hún svona
klofin og óánægð? Hvað vill þetta
fólk í raun og veru? Slíkar og því-
líkar spurningar heyrir maður úr
öllum áttum. En svörin geta verið
mismunandi.
Fyrir skömmu átti ég tal við ung-
an háskólakennara. Hann var mjög
róttækur á þessu sviði og hann sagði
af mikilli ákefð og frekju: „Það,
sem við viljum, er að rífa þetta
þjóðfélag niður.“
Þegar ég svo spurði hann hvað
hann vildi þá láta koma í staðinn
fyrir það samfélag, sem hann vildi
leggja í rúst, svaraði hann:
„Ekki neitt — ekki enn. En allt
annað er betra en það, sem við bú-
um við nú.“
Mér þykir, sem svona slagorða-
vaðall eigi lítið skylt við veruleik-
ann. En við förum villur vegar ef
við treystum því, að þessir niður-
rifsmenn séu aðeins nokkur hundr-
aðshluti af stúdentum og öðrum
menntamönnum. Stúdentaóeirðirnar
um gjörvallan heim hafa að vísu
veruleg áhrif á allar þær milljónir,
sem utan við þær standa og taka
ekki þátt í mótmælagöngum með
tilheyrandi kröfuspjöldum, valda
ekki óspektum. Samt fer ekki hjá
því, að einnig þessir menn verði að
einhverju leyti börn síns tíma og
verði fyrir einhverjum áhrifum af
þessari andlegu kreppu.