Úrval - 01.03.1970, Page 74
72
Laumu-
farþegi
Þetta er ein
ótrúlegasta saga,
sem gerzt hefur, —
frásögn píits frá Kúbu,
sem lokaði sig inni
í hjólageymslu flugvélar
og flaug þannig
yfir Atlantshafið.
¥m
J rýstiloítshreyf lar DC-8
þotunnar frá spænska
flugfélaginu þrumuðu
með ærandi hávaða,
þegar þessari stóru
flugvél var ekið í áttina til okkar,
þar sem við lágum í hnipri í há-
vöxnu grasinu við endann á einni
flugbrautinni á José Martí-flug-
vellinum í Havana. Mánuðum sam-
an hafði ég verið að ráðgera að ger-
ast laumufarþegi með þessu beina
flugi Iberia frá Havana til Madrid
á Spáni, en þangað var flogið án
viðkomu. Og Jorge Pérez Blanco
vinur minn tók þátt í þessum ráða-
gerðum mínum. Við höfðum lengi
ætlað okkur að skríða inn í hol-
rúmið, sem flugvélarhjólin eru
dregin upp í að flugtaki loknu, og
hírast þar alla leiðina. Og nú var
komið að hinu mikla augnabliki
síðdegis þ. 3. júní í fyrrasumar.
Við gerðum okkur grein fyrir
því, að við vorum helzt til ungir til
þess að leggja í slíka hættu. Ég var
aðeins 17 ára og Jorge 16. En við
vorum báðir ákveðnir í að sleppa
burt frá Kúbu, og við höfðum yfir-
vegað allt nákvæmlega og gert ítar-
lega áætlun. Við vissum, að flug-
vélum var ekið að enda þessarar
í— Readers Digest —r