Úrval - 01.03.1970, Page 102

Úrval - 01.03.1970, Page 102
100 ÚRVAL við vildum ættleiða Poppo lögum samkvæmt. Hún kom heim til okkar á til- skildum tíma, ásamt þeim Carmen og Francisco. Það var liðinn nærri mánuður, síðan hún hafði séð Poppo, og þau voru mjög ástúðlegt hvort við annað að venju. Þegar ég horfi á þau saman, fæ ég þann grun, að hann sé í mestu uppáhaldi hjá henni af öllum börmmum hennar. Tilfinningarnar voru ekki látnar í ljós á neinn óhóflegan hátt. Það var bara um að ræða rólega, innilega gleði. Hún greiddi honum, þótt hún vissi sjálfsagt, að hárið yrði sam- stundis úfið aftur. Hún hneppti skyrtunni hans í hálsinn og snerist í kringum ungann sinn. Síðan fóru þeir upp að leika og ég útskýrði ákvörðun okkar fyrir Maríu. Carm- en gerðist túlkur okkar. Svar Maríu var hiklaust. Þetta var það, sem hún hafði alltaf von- azt eftir. Hún sagði hið sama og Julio hafði áður sagt: „Þið getið veitt honum svo miklu meira en ég get.“ Eftir kynni mín af drengnum, öll- um uppátækjum hans og sífelldum spurningum, þrjózku hans og glettnisfullu duttlungum, get ég vel skilið, að hann hafði verið þeim Julio og Maríu stöðugt áhyggju- efni. Og samkvæmt áliti þeirra, hefur hann nú sýnt, að hann hefur komizt áfram í heiminum, að það fyrirfinnst fólk, sem hefur komizt að því, að „prakkarinn hann Poppo“ er indæll og elskulegur drengur í raun og veru. Já, þetta fólk er jafn- vel svo sannfært um það, að það vill eignast hann fyrir son. Dottie vill endilega tilkynna Poppo ákvörðun okkar tafarlaust, en við samþykktum að bíða, þang- að til við yrðum viss um, að ekki gæti verið um nokkrar lagalegar flækjur að ræða. Ég verð að játa, að ég er alveg dauðhræddur, þegar við höfum loks tekið þetta örlaga- ríka skref. „ÞETTA ER ALLT í ALVÖRU, POPPO“ Eftir að hafa átt tal við lögfræð- ing okkar næsta morgun, hringdi ég í skrifstofu Dottie og sagði, að lög- fræðingurinn væri nú nær algerlega sannfærður um, að fullgild ættleið- ing yrði framkvæmanleg, og ætti þetta allt að geta verið komið í kring að fullu eftir fjóra mánuði. „Svo að nú er það öruggt, að Poppo verður raunverulega sonur okkar,“ sagði ég. „Nú getum við tilkynnt honum þetta.“ Það varð dálítil þögn, og ég heyrði, að hún var hrærð í huga, þegar hún svaraði loksins: „Segðu honum það, strax þegar hann kem- ur úr skólanum, Joe. Bíddu ekki með það, þangað til ég kem heim.“ Ég fann, að ég gat ekkert unnið. Ég var glaður yfir því, að Dottie ætlaðist ekki til, að ég þegði yfir þessu við Poppo, þangað til hún kæmi heim um kvöldið. Mér datt í hug að hringja í skólann til Popp- os og biðja um, að hann yrði send- ur heim samstundis, en við nánari umhugsun fannst mér það kjána- legt. En eftir hádegismatinn datt mér skyndilega í hug, að hann kæmi kannske ekki beint heim. Því: lagði ég af stað fyrir klukkan þrjú og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.