Úrval - 01.03.1970, Side 103

Úrval - 01.03.1970, Side 103
POPPO 101 beið hans, þegar hann kom út úr skólanum. Við töluðum um þetta alla leið heim, og ég reyndi að útskýra lög- lega ættleiðingu fyrir honum eftir beztu getu. „Þetta er til frambúðar, Poppo, — sko, í alvöru. Eftir dálít- inn tíma verðurðu orðinn sonur okkar, alveg eins og við hefðum verið raunverulegir foreldrar þín- ir.“ Poppo þarf ekki mikið til þess að verða æstur og hávær, en þegar eitthvað stórvægilegt kemur fyrir hann, hvort sem það er gott eða slæhit, verður hann ósköp rólegur og talar lágum og tilbreytingarlaus- um rómi. Og það gerðist einnig núna. „Verð ég þá Josef Bergir, yngri?“ „Já, ég verð faðir þinn, raunveru- legur faðir þinn, sko, alvörupabbi, og Dottie verður móðir þín. Og við erum bæði mjög glöð yfir því.“ Við vorum á gatnamótum og bið- um eftir umferðarljósmerki. Hann hafði aldrei látið mig leiða sig yfir götu áður. En þegar græna ljósið kviknaði, rétti hann mér nú hönd sína og gleymdi að sleppa henni, eftir að við vorum komnir yfir göt- una. „EKKI FYRIR TRILLJÓN ÞÚSUND DOLLARA" Þegar vinir okkar og kunningjar heyrðu um ættleiðinguna, sögðu þeir yfirleitt eitthvað á þessa leið: „Mikið er þetta fallega gert af ykk- ur!“ Mér gramdist þetta alltaf. Við erum ekki að sýna óeigingjarna göfugmennsku gagnvart fátæku barni, líkt og þeir eiga við, heldur erum við á einhvern óskiljanlegan hátt að eignast geysileg auðæfi. Við hefðum aldrei getað fundið neinn „Poppo“, þótt við hefðum leitað að honum með logandi ljósi. Hann var líkt og óskiljanleg uppbót á allt okkar líf. Ég þurfti að fara inn í miðborg í dag og hringdi þaðan heim til þess að spyrja, hvort Poppo væri kom- inn heim úr skólanum. Hún Pearl, sem vinnur hússtörfin fyrir okkur 2 daga í viku, kom í símann, og sagði að hann væri ekki kominn heim ennþá. Þetta var klukkutíma seinna en hann var vanur að koma heim. Ég hringdi aftur klukkan hálf fimm, og þá var hann ekki enn kominn heim. En þegar ég kom heim rétt eftir fimm, var hann kominn. Hann sagði, að hann hefði staðið fyrir óspektum í bekknum og hefði ver- ið látinn sitja eftir í refsingarskyni. „Ég hafði svo miklar áhyggjur af þér,“ sagði hann. „Þegar þú ekki heyra ég var kom- inn heim, þá þú halda, ég ætla alls ekki koma heim aftur? Ekki rétt?“ spurði hann. Hann virtist mjög ánægður yfir þeim möguleika og beið forvitinn eftir svari. Nú var komið að mér að prófa hann. „Ég hélt, að þú hefðir kann- ske strokið." Hann hló við. „Það myndi ég ekki gera . . . nei, ekki fyrir milljón þúsund dollara . . ekki fyrir trillj- ón þúsund dollara." Svo varð hann hugsi og bætti svo við, glúrinn á svip ,,Og það er heil glás af pen- ingum.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.