Úrval - 01.03.1970, Page 108

Úrval - 01.03.1970, Page 108
106 ÚRVAL hefðum unnið sigur . . . að minnsta kosti um þessa helgi. FRÚ ÍSRAELS SEGIR SÍNA SKOÐUN Einn daginn sagði Poppo mér, að ég fengi bréf í póstinum þann dag, og væri bréfið frá frú ísraels. Myndi hún kæra yfir hegðun hans í skólanum, og væri það fyrst og fremst vegna þess, að hann væri alltaf síkjaftandi í tímum. Mætti ég búast við skipun um að mæta í skól- anum næsta dag. Þetta stóð allt heima. Og næsta dag átti ég svo tal við frú ísraels. Það var virðuleg kona, ströng á svip. Mér varð fljótt innanbrjósts eins og væri ég sekur nemandi hennar. „Eg sendi eftir yður, vegna þess að hegðun sonar yðar í skólanum er mjög ábótavant. Hann er óhlýðinn, eftirtektarlaus og veldur óróa í bekknum. Hann slæpist við vinnu og tekur ekki leiðbeiningum og til- sögn. Á þessu verður að verða breyting, eigi hann að fá að vera áfram í bekknumf' Það var allt og' sumt. Samtalinu var lokið af hennar hálfu. Eg bað hana um að ræða þetta nánar við mig. Hún virtist hissa, en samþykkti það þó. Og við töluðum um Poppo litla og vandamál hans í heila klukkustund. Hún var at- hyglisverð kona, stjórnsöm, en þó skilningsgóð. Það mátti greina sam- úð á bak við stjórnsemi hennar. Hún virtist samt aðeins geta skyggnzt inn í hug og hjarta Pipp- os litla sem röntgenmyndavél. Hún sá bara, hvað var að, en virtist ekki koma auga á kostina. Hún viður- kenndi þó, að hann gæti verið vin- gjarnlegur og ástúðlegur, bætti því við, að hann kynni vel við bekkjar- systkin sín, einkum þau, sem ekki bæri að taka sér til fyrirmyndar. Hún virtist hafa gert sér grein fyr- ir því, að við Dottie vorum ekki raunverulegir foreldrar hans. Síðan spurði hún mig, hve gamall hann hefði verið, þegar við ættleiddum hann. Þegar ég sagði henni, að við hefðum ekki ættleitt hann enn og hann hefði bara verið hjá okkur í þrjá mánuði, virtist henni bregða ónotalega. Öll afstaða hennar til mín gerbreyttist. Hún hætti öllum siðaprédikunum. Hún virtist raun- verulega hrærð, virtist jafnvel kom- ast í uppnám. Úg sagði henni, að Poppo hefði átt við geysileg aðlög- unarvandamál að etja, eftir að hann hefði flutzt til okkar, og því áliti ég, að viðleitni hans á heimilinu væri raunverulega hetjuleg, hvern- ig sem dæma bæri hana í skólanum. „Mér finnst þetta aðdáunarverð tilraun,11 sagði hún. „Ef til vill tekst ykkur þetta, en ef til vill verðið þið fyrir vonbrigðum. Þér afsakið von- andi, að ég skuli tala svona, en þessi drengur mun valda ykkur von- brigðum, nema þið getið gert kraftaverk. Hann er mjög gáfaður, en þá getur hann einnig reynzt mjög hættulegur, nema þið getið treyst honum.“ Þetta voru viturleg orð, sem vert var að leggja á minnið. Þó vissi hún ekki um ástúð Poppos. Hann er að vísu ekki allur þar sem hann er séður. Hann getur jafnvel verið undirförull og látizt vera annar en
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.