Úrval - 01.12.1971, Qupperneq 22
20
ÚRVAL
en hinir þægilegu, stuttu, oddmjóu
vængir.
Mirage I. hafði þess vegna rúm
fyrir meira eldsneyti og áberandi
meiri starfshæfni. Önnur nýjung
var innbyggði radarinn sem gerði
vélina alveg óháða jarðsambandi.
1958 kom fram þróaðri gerð Mir-
age, hin fræga Mirage III., mjög
svo alhliða sprengjuþota, sem ein
allra þota í sínum flokki gat flog-
ið hraðar en Mach 2, og samt þurfti
hún ekki nema 750 m langa flug-
braut til að ná sér upp eða lenda.
Hún var mörgum tonnum þyngri
en forveri hennar, en í staðinn fékk
hún miklu öflugri vél, sem gat
sveiflað henni mót himni eins og
byssukúlu.
Á þessum tíma voru ísraelsmenn
mjög órólegir yfir kaupum Egypta
á MIG-21 þotunni rússnesku. 1963
pantaði Tel Aviv 72 Mirage III.-
þotur. ísrael auglýsti aðdáun sína á
þessari frönsku sprengjuþotu með
því að gefa út nýtt frímerki sem
sýndi tvö merki um að þessi þjóð
vildi lifa: Yfir klettaveggnum Ma-
sada, þar sem uppreisnarmenn af
þjóð Gyðinga börðust til síðasta
manns gegn rómverskum hersveit-
um á 1. öld eftir Krist, þar svifu
tvær Mirage-þotur.
Mirage III. varð sér ekki til
skammar. í ágúst 1965 unnu þær
sinn fyrsta sigur yfir MIG-21 og á
innan við einu ári urðu átta MIG-
þotur að láta í minni pokann fyrir
þeim. Svo kom júní-morgunninn
1967, þegar Mirage-sveitirnar hreint
og beint þurrkuðu út flugher
Egypta. Og síðan „Sexdagastríðið"
stóð hafa Mirage-þotur skotið nið-
ur ríflega 90 MIG-þotur, og eru að-
alástæða þess, að ísrael hefur hald-
ið við hernaðarlegum yfirburðum
sínum gagnvart hinum svo miklu
fjölmennari andstæðingum sínum.
Núna eru Mirage-þotur til í tuga-
tali í alls konar gerðum. Sérhver
gerðin sýnir samt ákveðna hönnun,
samsetningu vopnabúnaðar, raf-
búnaðar eða hvað það nú er, sem
viðskiptavinirnir vilja. Eitt er þó
sameiginlegt með þeim öllum:
Hreina línan, sem er hinn listræni
stimpill sem Dassault setur á þær.
Engin ný gerð af þotunni verður
framleidd fyrr en líkan af henni í
fullri stærð hefur runnið framhjá
sjónum hans. Meðan hönnuðirnir
dunda sér við líkanið, situr hann í
hægindastól sínum, umkringdur
verkfræðingum og teiknurum og
,,sér hana út“ —• því eins og hann
segir: „Ef flugvél lítur ekki rétt
út, þá getur hún heldur ekki flog-
ið rétt.“
Verkfræðingar hans hafa aldrei
verið fleiri en 800 talsins. Hann vel-
ur hins vegar í þann hóp alls konar
fólk, tæknimenn sem vita allt um
hreyfingar loftsins, eðli málma,
flugvélamótora og allt mögulegt
annað. Hann hrósar sér af því að
hafa í starfsliði sínu menn, sem
gætu teiknað heila flugvél upp á
eigin spýtur, ,,á meðan Ameríkan-
ar nota hundruð verkfræðinga til
að hanna eina vél“.
Hin nýja þota Dassault, „Mirage-
G“ með vængjum sem hægt er að
sveifla var hönnuð af aðeins 100
verkfræðingum á tveimur árum, og
hún hefur ekki átt við að stríða
neina af þeim barnasjúkdómum,