Goðasteinn - 01.03.1968, Page 6

Goðasteinn - 01.03.1968, Page 6
ÞJÓÐTRÚIN OG FUGLARNIR Svo marga þætti spennti þjóðtrúin í haldreipi sitt, að ekki gat hjá því farið að fuglarnir eignuðust þar hlut að máli. Liggja þær rætur djúpt í liðnum öldum, því að fáar eru þær íslenzkar forn- sögur, sem ekki geta fugla í sambandi við marga þá fyrirburði, er boðuðu frásagnarverð tíðindi og mikla atburði. Fáir fuglar urðu þar fyrirferðarmciri en hrafninn. Þykir mér því hæfa að taka fyrst til athugunar, hvað mýrdælsk þjóðtrú sagði um þenna merka fugl og geymzt hefur í minni fram á þenna dag. Ef hrafninn settist á stein eða staur að morgni dags, ýfði fið- ur og hristi sig, vissi það á storm og úrkomu, áður en sá dagur væri allur. En flygi hann hátt og krunkaði léttilega, vissi það á gott og bjart veður. Ef hrafn settist á heysátu, rifi í hana og krafsaði, var gefið að lítið hefðist af henni og ekki annað lík- legra en að hún fyki. En sæti hann kyrr, krunkaði nokkrum sinn- um og ílygi síðan í átt til bæjar, hirtist hún bráðlega. Ef hrafnar rifust og flugu hátt, vissi það á vont veður. Væri maður á ferð eftir dagsetur og heyrði hrafn krunka, án þess að hann yrði fyrir ónæði í náttbóli sínu, gat sá hinn sami búizt við að eiga ekki langt líf fyrir höndum. Væri maður á ferð og hrafn settist skammt frá götu hans, ýfði sig og gargaði illilega, boðaði það slæmar fréttir þeim, er fyrir varð, og gjarna bárust honum þær fréttir á sama stað á bakaleið. Tæki hrafn upp á þvf fyrri hluta vetrar að sitja og krunka á gripahúsum, var eins víst að ekki sæju allar skepnur í því húsi vordagana. Eins var, ef hann tók upp á því að vera hjá sauðfé í haga og láta þar illa. Var þá viðbúið, að eitthvað fækkaði í hjörðinni. En tæki hrafn upp á því að sitja á baki sauðfjár eða hrossa, vissi það á slæma tíð og harðindi og jafn- vel hreinan og beinan felli, er að vori leið. Væri maður að leggja af stað í fjárleit til heiða fyrri hluta vetrar, var ekki lítið undir því komið, hvernig hrafninn hagaði sér, þegar nokkuð var kom- ið frá bæ. Ef maður mætti hrafni, sem kom fljúgandi úr þeirri átt, er halda skyldi, og hann steinþagði, voru lítil líkindi á að finna fé. En kæmi hann gargandi, var eins líklegt að maður fyndi dauða kind. Flygi hann í sömu átt, sem maðurinn hélt, og 4 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.