Goðasteinn - 01.03.1968, Side 8

Goðasteinn - 01.03.1968, Side 8
á rigningu. Væri hún á sífelldu flökti og flygi með miklum þyt, vissi það á storm. Flygi hún upp í valllendið að kvöldi, er á sumar leið, boðaði það þurrka, og ræki hún upp eitt og eitt kvak stakt að kvöldi, átti ekki að bregðast þurrkur dag eftir. Lakara var, ef mikill kliður var í henni fyrri hluta dags í björtu veðri, því að þá mátti búast við skúr. Þegar komið var fram á haust, mátti búast við snjókomu, ef lóan var hnípin og hélt sig heima við bæi. Ekki var fýllinn heldur frásneyddur allri spádómsgáfu. Ef hann síðari hluta vetrar sat mikið í berginu, þó kuldi væri, boðaði það hláku og hlýrra veður. Sama var, ef hann kom fljúgandi í hópum inn til landsins. En kulda boðaði það, ef hann síðari hluta dags hvarf úr berginu og flaug til sjávar. Trú manna var, að andi álftarinnar væri mjög eitraður. Talið var, að blési álft á mann og væri svo nærri, að blástur hennar næði volgur til mannsins, væri ekki annað líklegra en að sá hinn sami yrði holdsveikur. Sérstakt happamerki var að finna fætur af gráhegra og þó bezt að ná honum lifandi og taka af honum fæturna mcðan hann enn var volgur. Síðan átti að binda þá saman og hengja annað tveggja í búrbita eða dyraloft ef fyrir hendi var. Einhvern tíma í ungdæmi mínu lærði ég eftirfarandi kviðling um slíkt: Þorleifur á reka reið, Rauður fékk að þcefa. Honum mœtti heim á leið heldur en ekki gcefa. Hvorki var það hvalur né staur, heldur miklu fegra. Það voru fcetur ofan í aur af sjálfdauðum hegra. Þetta verður að nægja í bili um þjóðtrú og fugla. 6 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.