Goðasteinn - 01.03.1968, Page 9

Goðasteinn - 01.03.1968, Page 9
ÞÁTTUR FUGLA í MATBJÖRG MÝRDÆLINGA Allt fram að síðustu áratugum var fýll og lundi alldrjúgur hluti í matföngum Mýrdælinga og enn í dag munu þeir ekki svo fáir,. er fáan mat taka fram yfir fýlungann, þegar hann síðari hluta ágústmánaðar, feitur og fullvaxinn, leggur upp í sína fyrstu ferð, sem alloft verður líka hin síðasta. Mikið af unganum neyðist til að setjast áður en hann hefur að ná til sjávar, og vart er það sannur Mýrdælingur, er stenzt þá freistingu að slátra fýlunga, sem á leið hans verður, plokka hann, sjóða og eta. Ef til vill finnst ókunnugum lítil veiðifremd eða mannúð í því að ráða af dögum fugl, sem setzt hefur á jörð og ekki nær sér aftur á loft. En við erum þessu vanir frá barnsaldri og enn mun elda eftir svo að segja í blóði okkar arfur frá þeim tíma, þegar fýllinn var það meginafl, sem drýgst reyndist til að bægja hungurvofunni frá dyrum margra fátækustu heimilanna í Mýrdal. Bezt sýnir það, hverjum tökum sú tilbreyting hefur náð á hugum fólks, að fyrsta helgin sem fýlunginn var á borðum var ávallt nefnd fýlahelgi og sunnudagurinn fýlasunnudagur, sem var átjándi sunnudagur í sumri. Fram undir 1940 var hér í Mýrdal sigið í flest þau björg, sem fýllinn verpti í, og unginn tekinn á bælunum, áður en hann tók að hafa sig til ferðar. En laust fyrir 1940 komu upp í Vestmanna- eyjum nokkur sjúkdómstilfelli af hinnj svo nefndu fýlaveiki, er stafaði af smiti frá fýlungum. í nokkur ár höfðu Færeyingar orðið fyrir barðinu á henni, og hafði hún þar valdið allmörgum dauðs- föllum. Þegar þessa vágests varð vart hér á landi, var bann lagt við því að taka fýlunga úr bjargi, og lögðust þá fýlaferðir í björg niður, flestum Mýrdælingum til skapraunar. Var þar með úr sessi fallinn sá þáttur í búskaparsögu Mýrdælinga. Það var nú víst líka bannað að taka fýlungann, sem flaug úr hreiðri og sett- ist á jörð, en það bann mun ekki alltaf hafa verið haldið í heiðri og nú afnumið, enda fyrir löngu að engu haft. Tími sá, er fýlungaveiðar stóðu yfir, var ætíð nefndur fýla- tími og hafður til viðmiðunar um gang á slætti. Hann hófst þriðjudaginn eftir sautjándu sumarhelgi og stóð með flugtíman- Goðasteinn 1

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.