Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 14

Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 14
Mýrdalsins, og á ég þá við landnema, sem tekið hafa sér ból- festu sem nýir varpfuglar hér síðan 1920. Ég hef á öðrum stað birt nokkuð af athugunum mínum á breyttu fuglalífi í Mýrdal, en bæði er, að nokkur tími er síðan og svo hitt, að ekki munu þeir allmargir, sem það hafa lesið. Það ætti því ekki að koma að sök, þótt eitthvað af því verði endurtekið hér. Fyrsti fuglinn, sem byrjað hefur varp hér síðan ég man eftir er stelkur. Það mun hafa verið rétt eftir 1920, en eitthvað hafði hann sézt hér fyrr. Til að byrja með voru hér aðeins örfá pör, cn honum fór að stórfjölga eftir 1945 og nú eru stelkar hér í hundraða tali á hverju sumri. Næstur mun sílamávurinn hafa komið. Varð ég fyrst var við að hann verpti hér 1932, og síðan hefur honum fjölgað jafnt og þétt. Um líkt leyti kom svo jaðrakaninn hingað, en ég dreg í efa að hann hafi orpið hér, fyrr en eftir 1940. Honum hefur ekki fjölgað ört, en mest sá ég af honum í fyrra og í sumar. Silfurmávur sást hér ekki, svo ég viti, fyrr en nokkru eftir 1950, en nú hefur hann orpið nokkur vor í Dyrhólaey, fjögur til fimm pör. Trúlega hefur hann orpið suður á brúnum Víkur- heiðar síðastliðið vor, því að síðsumars sá ég þar nokkra af honum, bæði fullorðna og unga. Hettumávur sást hér vart eða ekki, fyrr en undir 1960, en nú er hér orðið allmikið af honum. Síðsumars í ár voru hér á túnunum „með bæjum“ stundum yfir 150 fuglar svo að segja í einum hóp. Ekki hef ég fundið varp- staði hans hér, en tel víst að hann verpi á þessum slóðum, því að mikið hefur verið af ungfugli í hópunum tvö undanfarin sumur. Auk framantaldra fugla, sem nú orðið mega teljast mýrdælskir varpfuglar, má geta súlunnar. Hún verpti á Mávadrangi sumar- ið 1966 og alls voru þar þá átta eða níu hreiður. Einnig mun hún hafa orpið þar 1965, en síðastliðið sumar held ég, að ekk- ert hreiður hafi verið þar. Þá má geta um tvær tegundir flökku- eða flækingsfugla, sem orpið hafa í Vík í eitt skipti hvor og að- eins eitt par af hvorri tegund. Voru það landsvala og krossnef- ur. Af þeim síðarnefnda hygg ég, að verið hafi afbrigðið scotica, sem heimkynni á í Skotlandi. Landsvalan verpti í Vík 1963 í bíl- 12 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.