Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 16

Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 16
Fyrsti farfuglinn, sem kemur, er tjaldurinn, þótt deila megi víst um, hvort hann skuli teljast farfugl. Þegar hann hefur látið til sín heyra, fer ég ætíð að svipast eftir skógarþrestinum. Aðeins hefur það borið við, að hann hafi orðið á undan tjaldinum að heilsa upp á mig, en flest árin hefur tjaldurinn orðið á undan og oftast koma þeir síðustu dagana í marz eða fyrstu dagana í apríl. Næst eftir þeim hafa gæsir og heiðlóur skipzt á að koma. Þess má geta að ávallt hef ég séð fyrstu gæsahópana koma fljúg- andi úr austri. Fmginn farfugl hefur reynzt mér eins stundvís og stelkurinn. Síðan 1954 hef ég séð hann fyrst frá 16. til 20. apríl, fimm árin hinn 19. og ávallt að morgni dags. Oft hef ég séð hann fyrst sitjandi á sama girðingarstólpanum við dýjavæsu neðan við túnbrekkuna hjá mér. Þá eru það blessaðir litlu fuglarnir, maríuerlan, þúfutittling- urinn og steindepillinn, sem oftast koma í síðustu viku apríl. Venjulega er þúfutittlingurinn fyrstur þeirra, en steindepillinn síðastur, þó á því hafi orðið nokkrar tilfærslur. Auk þeirra fugla, sem að framan greinir, hef ég skráð kjóa, spóa og jaðrakan, sem venjulega hafa ekki sézt hér fyrr en í byrjun maí. Allir hafa þeir átt sammerkt með það að vera mjög óstundvísir um komudag. Eins og ég gat um í upphafi þessa kafla hef ég aðeins skráð reglulega þessar fuglategundir, þar sem hægast hefur verið að fylgjast með þeim. Annars staðar á landinu er ef til vill auð- veldara að fylgjast með öðrum tegundum. Við sjávarsíðuna er sennilega auðveldara að fylgjast með sandlóu og sendling og ef til vill öðrum tegundum. En segja má, að lítt sé meiri fróð- leikur í því að vita um komudaga fugla heldur en fardaga þeirra að hausti. En það er nokkru erfiðara og veldur mestu, að ég hef lítið fylgzt með þeim, að oftast hef ég verið að heiman all- an birtutíma dagsins um það leyti, sem fjöldinn af þeim fer. Þó get ég fullyrt, að fyrst fer tjaldurinn, oftast í byrjun september, en skógarþrösturinn síðastur, venjulega ekki fyrr en undir eða um miðjan nóvember eftir tíðarfari. 1 þessum kafla hef ég látið nægja að gera stuttan samanburð og ekki skráð mánaðardaga í 14 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.