Goðasteinn - 01.03.1968, Page 25

Goðasteinn - 01.03.1968, Page 25
hlusta. Þetta hafði verið góð kennslustund, þar sem pabbi var nemandinn en Villi kennarinn. Ég sá Villa oft í því hlutverki. Það' var erfitt að andmæla þessum hógværa og drenglynda frænda mínum, þegar hann tók svari lítilmagnans, og sízt vildi pabbi verða til þess. Og nú lyfti Villi grátþungu höfði mínu, strauk mér blítt yfir tárvotar kinnar. „Hættu að gráta, Ásta mín,“ bað hann. „Reyndu að fyrirgefa frænda. Ég vissi það hreint ekki, að þú áttir töfluna,. hélt að pabbi þinn ætti hana, bara að þú fengir að reikna á hana. Ég skal sannarlega sjá til þess, að þú fáir þetta fullbætt. Reyndu að verða aftur glöð, svo að frænda líði ekki illa.“ Nú fyrst leit ég á Villa, og aldrei gleymi ég því, sem ég sá þár bláu augun hans frænda míns brostu undurblítt við mér, en þau voru líka full af tárum. Þá tók ég um háls hans og hvíslaði í eyra hans: „Ég skal verða glöð aftur, strax, en vert þú þá líka glaður.“ Taflan var orðin aukaatriði, frændi hafði borið svo vel í sárið, að það var gróið. Villi frændi er enn á lífi. Hann heitir fullu nafni Vilhjálmur Sigurðsson, og voru þeir systkinasynir pabbi og hann. Ég sá Villa síðast fyrir rúmum 50 árum. Þá var hann orðinn veikur á sál og líkama - og alltaf síðan. Gleði augna hans var þá slokknuð og svipurinn fjarrænn. Mynd Villa, meðan hann var heilbrigður, máist ekki, persónu- leikinn var sterkur og bládjúpu augun, góðleg og gáfuleg, lýstu svo vel göfgi sálarinnar. Og hjartað, það var heitt. Um það efast eng- inn, sem þekkti hann. Villi frændi! Þú, sem alltaf varst á verði með útréttar hendur til hjálpar þeim smáu, til að græða sár, til að hlú að og verma, þú sem tókst bitann frá munni þínum til að gefa svöngum börnum, þér verður aldrei gleymt, ekki heldur fullþakkað. Ég á margar fagrar bernskuminningar, en þar ber Villa hæst, hinn hjartagóða frænda, sem var heill og sannur á veginum með mér. Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.