Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 27

Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 27
í upplausn og formyrkvun miðalda var lengi vel minna skeytt um andleg verðmæti og þar á meðal bókmenningu en verið hafði fyrrum. En kristnin breiddist út um Evrópu á þessum öldum, og í kjöifar hcnnar fylgdi ritlist og menning. Prestar og munkar urðu lærifeður og skrifarar þeirra tíma. Mjög mörg dýrmæt handrit voru einmitt varðveitt og endurrituð í kyrrð og friði innan múra klaustra og biskupssetra, þótt utan þeirra geisaði ófriður og hvers kyns villi- mennska. Munkar höfðu nægan tíma til að vanda sig. Þeir lögðu gjarna mikla vinnu í hvert handrit. Margir þeirra skrifuðu lista- fagra hönd og oft skreyttu þeir upphafsstafi með ýmsu útflúri og teikningum og máluðu með fegurstu litum. Mörg dæmi um ágæt- an fegurðarsmekk þessara miðaldaritara er að finna í sumum ís- lenzku handritanna eins og í Flateyjarbók og víðar. En vinnan gekk hægt á miðöldum við ritstörf sem annað, því að þá hafði hraðahugtakið lítil ítök í hugum manna. Og fáar voru bækurnar, sem komu út meðal almennings í þá daga. Þegar líða tók á miðaldir, var byrjað að skera út í tré ýmsar myndir, oftast helgimyndir, bera á þær liti og þrykkja þeim síðan á þann stað, þar sem myndirnar áttu heima í bókinni. Myndamót þessi mátti svo geyma og nota aftur og aftur í ný afrit eða aðrar bækur. Þá er talið, að í hinu fjarlæga Kínaveldi hafi verið fund- in upp eins konar prentlist þegar á 9. öld og að vitneskjan um hana hafi sennilega borizt til Evrópu, þegar líða tók á miðaldir. Uppfinning Kínverja var í því fólgin að skera í tré stafi og tákn á heila blaðsíðu í einu lagi, bera síðan á prentsvertu og þrykkja að lokum á pappír. Lítillega var prentað í Evrópu með þessari kín- versku aðferð, t.d. valdir kaflar úr ritningunni og fleira. En sá galli var á, að jafnskjótt og hver síða var fullprentuð, var tré- skífan með stöfunum ónýt og skera þurfti út nýja tréskífu fyrir næstu síðu o. s. frv. Þetta var því mjög seinleg og dýr aðferð við bókargerð og breiddist lítið út. Þá var það sem Gutenberg kom til sögunnar og fann upp prent- listina eins og við þekkjum hana og gerðist þar með einn af mestu hugvits- og velgerðarmönnum mannkynsins. Uppfinning Guten- bergs var í því fólgin að skera út lausa bókstafi og raða þeim sam- an í orð og línur á hverja blaðsíðu fyrir sig. Að lokinni prentun Goðasteinn 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.