Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 36

Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 36
stétt við bæinn úr grjóti, sem hann bar að, oft við ljós á kvöldin. Séra Bjarni hafði þá nýlega byggt bæinn og flutt hann til á annan stað frá þeim, er áður var hann. Anna, kona Stefáns, fór í vist til bóndans, sem hóf búskap á jarðnæðinu, sem þau Stefán flosnuðu upp frá. Börn þeirra tvístr- uðust í ýmsar áttir. Tvö þeirra dvöldust í Lóni til æviloka, Margrét og Guðmundur. Þau giftust ekki né eignuðust afkvæmi, voru vinnu- hjú alla sína ævi og fengu gott orð fyrir tryggð og trúmennsku. Greinileg merki báru þau um skort og vanlíðan í uppvexti; það sást á vaxtarlagi og kom fram í vinnu, sem einkenndist meira af seiglu en þreki. Mestan hluta ævinnar voru þau í Volaseli. Þar andaðist Guð- mundur 1917, talinn 63 ára. Margrét andaðist 1933, 82 ára. Anna móðir þeirra andaðist einnig í Volaseli 1882 sem sveitarómagi, með 180 fiska meðlagi. Banameinið talið „ellikröm“. Hún var þá 66 ára. Ævilok Stefáns urðu þau, að hann varð úti á ferð í Nesjum, 31. október 1880; var seint á ferð, sem oftar, og einn síns liðs. Þá tal- inn 62 ára, niðursetningur hjá Eiríki Jónssyni bónda í Hlíð, með óvenju háu meðlagi, 350 fiskum. Hámark venjulegra meðlaga var þá 240 fiskar. Hvað valdið hefur, er ekki gott að segja, kann vera, að Stefán hafi þótt of værukær og fáskiptinn um heimilisstörf. Þannig lauk ævi þessa einstæða manns, sem í móðurætt var 5. maður frá Jóni biskupi Vigfússyni og 3. maður í föðurætt frá Lár- usi Scheving klausturhaldara á Munkaþverá. Eitt af börnum Stefáns, scm ekki hefur verið getið, var Guðný. Hún mun hafa alizt upp hjá skyldfólki sínu í Nesjum og varð fyrri kona Jóns bónda Benediktssonar í Árnanesi. Synir þeirra voru Vil- mundur bóndi í Árnanesi og Lúðvík búfræðingur í Reykjavík. Lýkur hér þessum molum, sem ég hef tínt saman um þennan kynlega kvist. Skráð 1965. Hcimildir: Manntöl í Stafafcllssókn, Sóknarlýsing Einholts, Fjölnir, 8. ár, Hreppsbækur Bæjarhrepps, munnmælasagnir. 34 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.