Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 50

Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 50
eða á hestum. Ég man, að fólkið kom bæði ofan úr Landsveit og frá Stokkseyri og Eyrarbakka, 20-30 km leið. Mundi það þykja erfitt núna. Nú er aðal atriðið að vera nógu duglegur að sitja á rassinum, í staðinn fyrir að ferðast gangandi og bera oft þungar byrðar yfir vötn og vegleysur. Það var á þessum árum, að Ólafur læknir á Þjórsártúni kom að máli við mig og sagði mér, að járn- smiður í Reykjavík hefði beðið sig að ná í einhvern strák handa sér til að læra járnsmíði. - Spyr mig hvort ég mundi ekki vilja slá til og fara til náms hjá honum. Ég kvaðst mundu gefa mig til en sagði, að ég yrði að fá leyfi hjá foreldrum mínum. Ég fór fram á það við þau, en ekki þótti þörf á að kenna fólki að vinna á þeim árum og var þetta ekki ncfnt meira. Þetta var vorið 1907 og var þá lítið farið að gera að því að kenna ungum mönnum, annað en það lítilræði sem íarkennararnir hnoðuðu í mig og aðra. Ég varð að hafa það fyrir mína skóla- göngu að fara á milli bæja og taka eftir og hafði bezt af því á stundum. Ég lenti oft á mjög myndarlegum heimilum, t.d. Hrólfs- skála, Norðtungu, Kirkjubæ, Stóra-Hofi og mörgum fleiri. Sumarið 1908 byggði faðir minn íbúðarhús á Berustöðum og vann ég við þá byggingu. Upp frá þessu fór ég að vera við húsa- smíð á ýmsum stöðum milli Þjórsár og Rangár, einnig í Reykjavík, en reri á vetrarvertíðum. Á Þjórsártúni var ég með góðum smið- um, sem ég lærði mikið af, þar á mcðal Sigurþór Ólafssyni, Hirti Oddssyni og fleirum. Sumarið 1910 brann húsið að Stóra-Hofi á Rangárvöllum. Þar bjó þá stórbóndinn Guðmundur Þorbjarnarson og var húsið endurbyggt með breytingum um haustið. Um haustið hitti ég Sigurþór Ólafsson og bauð hann mér að koma mér í bygg- ingu hússins að Stóra-Hofi. Tók ég því tveim höndum. Þetta tókst, ég var sóttur og var á Hofi fram á góu cn fór þá suður í Garð til að róa. Vorið 1912 fór ég frá Berustöðum og gerðist lausamaður og ætlaði nú að fara að græða peninga og verða ríkur lausamaður. Ég fór úr Garðinum og til Reykjavíkur að leita að vinnu, tók Run- ólf bróður með mér, hann reri á Auðnum á Vatnsleysuströnd. Gengum við til Reykjavíkur. Við fengum vinnu í Viðey við að bera á bakinu kol og salt, erfitt og óhreinlegt verk, eta svo eitthvað' snarl úr tösku og sofa síðan á gólfinu í pakkhúsinu. Rúmfötin voru 48 Goðasteirm-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.