Goðasteinn - 01.03.1968, Side 51

Goðasteinn - 01.03.1968, Side 51
pokar og tuskur. Þessi vinna entist í hálfan mánuð. Var þá enn farið að leita að vinnu, og fékk ég hana uppi á Keldum í Mosfells- sveit. Svaf ég þar í gamalli baðstofu, sem var hálfdottin og glugga- iaus. Var það líkt og í Viðey. Þegar ég var búinn að vera þar nokkra daga og vinnan að þrjóta, þá skeður það, að ég fæ boð frá Sigurþór smið, sem biður mig að koma austur á Rangárvelli að smíða sem allra fyrst. Það hafði komið mjög harður jarðskjálfti og hrunið hús á mörgum bæjum. Ég brá fljótt við, fór af stað austur og kom að Bcrustöðum á þriðja degi, þreyttur og með harð- sperrur eftir gönguna. Ég fékk mér leigðan hest, sem ég mátti hafa yfir sumarið, hét hann Móskjóni, ágætur hestur. Ég fór á Skjóna austur að Selalæk til Sigurðar Guðmundssonar oddvita, en hann hafði umsjón með útvegun á mönnum til hjálpar, þar sem mest hafði hrunið. Lét hann mig fara að Kumla í Oddahverfi, og byrjaði ég þar á litlu húsi og fékk einn mann mér til hjálpar. Þar var ég, þangað til fólkið gat farið að sofa inni. Þetta var aðeins eitt her- bergi og bæjardyr og varð varla fokhelt, en látið duga til hausts- ins. Bóndinn í Kumla hét Ólafur Tómasson. Frá Kumla fór ég að Brekkum á Rangárvöllum. Þar útbjó ég við baðstofuna dálitla við- bót. Það var farið á skcmmsta vaði og sparaðir pcningar, enda ekki alls staðar til heldur. Næst fór ég að Stokkalæk til Egils Jóns- sonar og gerði þar ýmislegt en engar nýbyggingar. Þaðan að Kirkju- bæ til Gríms Thorarcnsen. Næsti bær var Foss á Rangárvöllum. Þangað fór með mér Sigurður á Selalæk, sem átti þá jörð. Hjálpaði hann mér að koma upp baðstofu. Á Fossi var ég lengi, því ég varð að klæða baðstofuna að innan. Þaðan fór ég að Svínhaga og var þar hjá Auðuni Jónssyni i hálfan mánuð, eða víst það. Þar næst var ég látinn fara að Næfurhoiti. Var þá kominn ágústmánuður. Þar var ljótt um að litast og ekkert farið að gera, hafði bærinn hrunið til grunna. Næfurholt stendur við rætur Bjólfells, og hafði hrunið mikið grjót úr fjallinu, þar á meðal stór björg, sem stefndu á bæinn, og komu sum björgin að heygarðinum. í Næfurholti bjó Ófeigur Jónsson ásamt sonum sínum, Ófeigi og Jóni. Sá Jón fór upp í Landsveit og tók jörðina Vatnagarða, en Ófeigur eldri og yngri byggja í Næfurholti og var bærinn fluttur fjær fjallinu og byggt timburhús alveg frá grunni. Þá voru mér sendir tveir smiðir Goðasteinn 49

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.