Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 62

Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 62
skipinu til fiskjar frá Hafnarbúðum um vorið, og bar ekki til tíð- inda en allt gekk vel. Um haustið fór ég einnig þangað til vers. Þá bar það til í öðrum eða þriðja róðri, er vér vorum komnir fram á mið í bezta veðri, að allt í einu dró upp ákaflegan mökk í vestri, er á svipstundu æddi um allt loftið, svo himinninn varð albyrgður á augabragði. Um leið skellti á eitt mesta ofsarok af austri, sem ég minnist að hafa séð. Þessu fylgdi einhvers konar úði eða suddi, sem klesstist ut- an á okkur og allt, sem í skipinu var, bæði segl og annað. Þetta líktist helzt myglu eða einhvers konar óþverra, og loddi það við lengi á eftir. Vér höfðum uppi vaði vora hið bráðasta og tókum til ára, enda þótt ólíklegt væri, að vér drægjum nokkuð gegn slíkum ofsa. Brátt komst ég þó að raun um, að oss gekk furðanlega. Vér þæfðum svo áfram æði lengi, þar til að vér vorum komnir fast að landi, cn þótt vér sæjum ekkert frá oss, hittum vér rétt á lendinguna og lentum svo slysalaust. Síðan fórum vér að taka á oss náðir, því að vér vorum allþrekaðir eftir barninginn. I vcrbúð minni hagaði svo til, að tvö rúm voru undir annarri hliðinni en eitt undir hinni. Fyrir framan það var autt pláss, er vér geymdum í verskrínur og annað dót. Tveir sváfu saman í hverju rúmi. Rekkjunautur minn var bóndi frá Síðu í Refasveit, Kristján að nafni, Guðlaugsson. Við sváfum í staka rúminu, hann við stokk cn ég við vegg. 1 rúminu gegnt okkur var maður, er Sveinn hét, Sveinsson, bóndi í Hólabæ í Langadal. Hann var talinn vera vel skyggn. Þegar vér vorum flestir fyrir litlu sofnaðir, dreymir Kristj- án, að honum þykir strákur koma inn í búðina, heldur lítilf jörlegur, í grárri úlpu, með mórauðan hattkúf á hausnum. Þegar hann er kominn inn úr dyrunum, fer hann að tvístíga þar á gólfinu og mænir upp í rúmið til okkar. Kristján þykist þá spyrja, hvaðan hann sé. Hann segist vera vestan af Ströndum, vinnumaður Sveins á Felli. „Hvað ertu að erinda hingað?“ spyr Kristján. „Ég átti að finna hann Guðmund hérna,“ svarar strákur, tekur af sér hatt- kúfinn og fer að búast til að skreiðast inn yfir rúmgaflinn. En þá þykist Kristján ætla að sparka til hans, en í því vaknaði hann og hafði þá spyrnt svo fast í fótagaflinn, að hann losnaði frá. Sveinn var vakandi og sá nákvæmlega allt, sem Kristján dreymdi, 60 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.