Goðasteinn - 01.03.1968, Page 70

Goðasteinn - 01.03.1968, Page 70
cru liðin frá þessum atburði, en ég man hann eins og hann hefði skeð í gær. Sagt er, að til hafi verið hestar, sem sjálfir þræddu vöð á vötn- um, héldu brotinu hefðu þeir farið það áður. Fengi þá hvorki straumur né annað hnikað þeim, svo lengi sem þeir náðu til botns. Að þeir tækju ráð af mönnum við þær aðstæður, hafði ég þó ekki heyrt getið um; það lærði ég í ferðinni. Satt að segja gat ég ekki feilt mig við það, að hestar væru látnir sjálfráða í vondum, vand- förnum vötnum og trúði því ekki, fyrr en vitur hestur tók af mér ráðin. Hestur þessi var brúnskjóttur að lit, ættaður úr Öræfum og alinn þar upp af Þorsteini Guðmundssyni, er lengi bjó í Skaftafelli, þar sem Skeiðará „talar ein við sjálfa sig,“ og hún mun hafa skólað Skjóna í því að vaða og velja vötn. Hólmsá getur orðið flugvatn í hitum og rigningum á sumrum. Lengi eftir hlaupið 1918 bar hún fram ógrynni af ösku og vikri, einkum þó í regni, því af nógu var að taka við eldhúsdyr Kötlu. Flaut þá oft svo mikið á ánni, að lítt eða eigi sá vatn, utan þar scm mcst var straumkast. Hurfu þá og flest einkenni rennandi vatns. Brot varð naumast eða ekki greint, svo eigi var viðlit að leggja í vatnið. Fyrri hluta sumars 1919 voru málaðar brýrnar á Hverfisfljóti og Brunná í Fljótshverfi. Gerði það maður frá Reykjavík, Valgeir Jónsson að nafni. Hann hélt til hjá okkur á Maríubakka, meðan hann vann að þessu. í minn hlut kom að flytja hann til Víkur í Mýrdal. Þrjá hesta þurfti til ferðarinnar, einn undir föggur Val- geirs. Við vissum, að Hólmsá var vond yfirferðar, oftast slarkfær, stundum ófær, einkum er á leið dag. Var því betra að hafa trausta hesta að heiman. Pabbi lagði til, að við fengjum að láni brún- skjótta hestinn, sem við vissum, að var vanur vötnum, og það var heillaráð, eins og fleira, sem pabbi lagði til mála. Við góðan dreng og mikinn greiðamann var að eiga um þetta, þar sem var Helgi Bjarnason bóndi á Núpum. Hann lánaði okkur óðar hestinn, sem þá var fjórtán vetra, að mig minnir. Þótti nú betur horfa, ef Hólmsá ygldi sig eitthvað. 68 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.