Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 77

Goðasteinn - 01.03.1968, Síða 77
landsá var inni á aurum og það höfðu bændurnir farið um morg- uninn. Ég sagði sem var, að sundlaust hefði ég sloppið, en mér leizt ekki allskostar vel á reiðskjóta þeirra og bætti því við: „Það er bara verst með brotið, því fara verður á móti straumi mikinn hluta þess, og væri ég í ykkar sporum, færi ég inn á aura.“ Þessu teiddist Guðmundur og sagði: „Heldur þú, strákpjakkur, að okkur sé ófært það, scm þú kemst, við skulum sýna þér það.“ Um leið sló hann undir nára og þeysti burt, en Oddur varð eftir. Þegar Guðmundur sá það, sneri hann við, dró upp hjá sér flösku, saup vel á, rétti að Oddi og mælti: „Gefðu svo drengnum, ef hann vill, nann meinar þetta vel.“ Honum var þá runnin öll þykkja til mín fyrir ráðlegginguna og varð fyrir að spyrja mig í þaula, hvaðan ég væri, hvað ég héti og hvaðan ég kæmi m.a. Ég leysti úr spurn- Mgum hans. Varð hann þá hugsi andartak og sagði svo: „Fórstu etnn yfir Hólmsá?“ Ég játaði því. Skein þá fyrst út úr honum van- trúin en sagði síðan: „Þú ert ekki allur þar sem þú ert séður, að komast þetta, án þess að drepa þig, þar er þó enga smásprænu um að ræða.“ Félagi hans tók undir það, en var annars málfár. Guð- tnundur talaði því meir, minntist við flöskuna á milli og sagði með- nl annars: „Líklega ert þú efni í vatnamann, ef þú gætir þín.“ Ekki reiddist Guðmundur því, þó ég hafnaði víninu, en sagði: „Það er rétt hjá þér, vín er eitur, þó við kallarnir setjum það í okkur stundum. Þegar ég kvaddi þá félaga, bað Guðmundur fyrir kveðju til pabba frá Gvendi í Dalbæ. Það gerði Oddur einnig. Þeir tæmdu síðan flöskuna, köstuðu henni frá sér og hvöttu gæð- mgana með stefnu inn á aura. Þótti mér gott til þess að vita. Nú var skammt að Keldunúpi. Þar bjó vinafólk okkar, Bergur Jónsson og Guðný Brynjólfsdóttir. Þau lögðu fast að mér að dvelj- ast yfir nóttina, því mjög var liðið á daginn, en eigi vildi ég það, nú styttist leiðin óðum, og ég var heimfús. Ég áði hestunum góða stund og fékk sjálfur ágætis máltíð hjá þeim góðu hjónum, Bergi og Guðnýju, sem jafnan voru mér sem foreldrar, er ég minnist með þökk cg í kærleika. Aftanljómi. sólar skein yfir Síðuheiðum, er ég fór frá Keldunúpi, cg heim kom ég laust eftir háttumál. Goðasteinn 75
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.