Goðasteinn - 01.03.1968, Side 79

Goðasteinn - 01.03.1968, Side 79
Nú voru gerðar margar tilraunir til að hlaða í Valalæk, en þær mistókust allar. Sagði Einar á Jaðri um það, að ekki myndi heppn- ast að hlaða í Valalæk, fyrr en Þykkbæingar kæmu til hjálpar, en bið varð á því, þar sem Valalækur létti á Fjarkastokk, sem var fyrir framan engjar Þykkbæinga. Einar lét það fylgja, að færi sú íteppa úr, sem gerð yrði með hjálp Þykkbæinga, yrði Valalækur aldrei tepptur. Um síðir varð það, að Þykkbæingar komu Land- cyingum til hjálpar við að hlaða í Valalæk og þá loks tókst að- stcmma stigu við honum, og hefur verkið dugað til þessa dags. Á almanna vitorði var, að Ögmundur í Auraseli stóð í nánu sambandi við huldufólk og hélt með því hverja nýársnótt. Einu sinni kom maður til Ögmundar og sá hjá honum mikla hrúgu af nýveiddum silungi. Hann furðaði sig á því og spurði, hvar þessi góða veiði hefði fcngizt. Ögmundur svaraði: „1 Vigdísarmynni,“ en það var staður, sem enginn í Landeyjum eða Fljótshlíð kann- aðist við. Var ætlað, að nafnið og veiðin væri frá byggðum huldu- manna. Að mestu eftir sögn Einars Einarssonar frá Berjanesi í Landcyjum. Nóv. 1967. Stökur Gjörvallt betur ganga fer, gleymist hretið magnað. Langur vetur liðinn er, lýðir geta fagnað. Hefjum fána, byrjum brag. birtan þrána vekur. Loftin blána, lengir dag, loksins hlána tekur. ]■ Goðasteinn 77

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.