Goðasteinn - 01.03.1968, Page 89

Goðasteinn - 01.03.1968, Page 89
Flyt ég það með fréttum vöndum, foldu hrings ég tel, þó auðlegð ekki hafi í höndum hér ég uni vel. Sverrir Magnússon og Erasmus Árnason bændur á Grímsstöðum voru saman í fjöruferð, ásamt Jóni á Lyngum. Jón fór einn ein- hvern part fjörunnar. Ekki er getið um reka, nema það, að Jón fann flösku eina, tóma, sem hann tók og stakk í vasa sinn. Hann þóttist vita, að þeir Grímsstaðamenn mundu verða spurulir og hugsaði sér að svara þeim ekki beinum orðum. Þegar þeir hitt- ust spurði Sverrir mjög ákaft: „Fannstu nokkuð rekið?“ Jón lét lítið yfir en segir þó: Fann glerhöll fyr mundar mjöll, margur sóa kjörði. Ljót voru spjöll, því iðrin öll í hana vanta gjörði. Loks eru hér tvær vísur, sem ég lærði af Jóni, er við, ásamt fieirum, vorum á ferð austur yfir Mýrdalssand á heimleið frá Vík. Þá var gamli maðurinn ofurlítið ör af smáatlotum við þá hálsmjóu. Ríkur: Þér um hauður Herrann bauð, hafnið dauðadyggð ótrauð. Af þínum auði bít út brauð, að bæta snauðum hungurnauð. Fátækur: Fróns um hlað ef fátækt að fellur skaði, ei harma það. Gæzkuhraður gefur það, guð, þér maður þarftu hvað. Ég held, að í þessum hendingum sé nokkuð glögg mynd af innra manni Jóns Ásmundssonar, sem vissulega var góður fulltrúi sam- tíðar sinnar. Með beztu kveðju til Goðasteins. E. S. Godasteinn 87

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.