Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 99
HÉRAÐSFUNDIR
102
Þá var lögð fram og samþykkt svohljóðandi tillaga, og voru
flutningsmenn síra Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup og safnaðar-
fulltrúi frá Grímsey, Þorlákur Sigurðsson: „Héraðsfundur Eyja-
fjarðarprófastsdæmis haldinn á Akureyri 20. okt. 1974 æskir þess
eindregið, að Grímsey verði aftur sérstakt prestakall eins og var
um aldaraðir. Þá telur fundurinn eðlilegt að presturinn þar verði
kennari eyjarinnar. Fjarlægð eyjarinnar frá meginlandinu er svo
mikil, að prestsþjónusta fyrir Grímseyinga úr landi hlýtur að vera
miklum takmörkunum og erfiðleikum háð. Það skal fram tekið
að í Grímsey fjölgar fólki, og er það aukin ástæða til þess að koma
þessari skipan í það horf, sem áður var.“
Því næst sleit prófastur fundi með stuttri andakt og þakkaði
mönnum fundarsetu og óskaði þeim góðrar heimferðar. Vígslu-
biskup hafði orð fyrir fundarmönnum og þakkaði prófasti fundar-
stjórn og ámaði honum allra heilla.
Að loknum fundi settust fundarmenn og konur að kaffidrykkju
í kapellu kirkjunnar í boði sömu aðila og áður. Þar sýndi síra
Birgir Snæbjörnsson litmyndir og sagði frá ítalíuför Karlakórsins
Geysis nú á þessu sumri. Góður rómur var gerður að erindi og
sýningu síra Birgis og höfðu menn mikið gaman að því.
Áður en héraðsfundur hófst, eða kl. 10 f. h., hófst sameiginlegur
fundur sóknarnefnda og presta úr prófastsdæminu í Akureyrar-
kirkju. Prófastur setti fund og stýrði honum, en síra Pétur Sigur-
geirsson flutti erindi um störf og skyldur sóknarnefndarmanna.
Mikil þátttaka og góð var í fundinum og ýmis sameiginleg vanda-
mál þar rædd. Ákveðið var að kalla aftur saman slíkan fund á
næsta sumri í júní—júlí. Þessi tilraun tókst vel, en hér mun vera
um nýmæli að ræða.
Stefán Snævarr.
I
HÉRAÐSFUNDUR
ÞINGEYJARPRÓFASTSDÆMIS 1974
Héraðsfundur Þingeyjarprófastsdæmis var haldinn í Hafra-
lækjarskóla 25. ágúst 1974. Hófst hann með guðsþjónustu í Nes-
kirkju, þar sem sr. Jón A. Baldvinsson predikaði, en sr. Örn Frið-
riksson og sr. Bolli Gústavsson þjónuðu fyrir altari. Altarisganga
var að venju og gengu milli 20 og 30 til guðsborðs.
í messulok flutti prófastur, sr. Sigurður Guðmundsson, yfirlits-
erindi um störf kirkjunnar. Hóf hann mál sitt á því að ræða um