Skírnir - 01.04.1906, Blaðsíða 46
142
Smáþjóð—stórþjóð.
Skirnir-
sál, hennar sorg og' hennar gleði. Hún veit líka, að það
sem hún er, það sem hún á og það sem hún ann er alt
fengið með stríði og striti, keypt dýru verði einnar kyn-
slóðar eftir aðra. Hún ein veit til fulls, hvað alt þetta
hefur kostað, hvers virði arfur hennar er, trúin, siöirnir,
lögin, tungan, bókmentirnar, vísindin, listirnar og þau
verk önnur sem á þessu byggjast. Alt er þetta mótað og
merkt eðliseinkennum þjóðarinnar, vottur þess hvað hún
liefur athugað, hugsað, elskað og hatað. Hún ein getur
skilið þennan arf til fulls, ávaxtað hann og aukið eins
og vert er. I því er köllun hennar fólgin. Menning
forfeðranna er sem sverðin, er gengu að erfðum í fornöld
frá kyni til kyns. Við þau vóru tengdar margar sögur
og merkilegar. Asdís fylgir Gretti syni sínum á leið:
Hon tók þá undan skikkju sinni sverð búit; þat var all-
góðr gripr. Hon mælti þá: »Sverð þetta átti Jökull
föðurfaðir minn ok hinir fyrri Vatnsdælar, ok var þeini
sigrsælt; vil ek nú gefa þér sverðit, ok njót vel«. Grettir
þakkaði henni vel gjöflna ok kvað sér þetta betra þykkja,
enn aðrir fémunir, þótt meiri væri.
Til þess að sýna, hvað í sjálfri henni og í arfinum
býr, til þess að votta með verkum sínum ágæti sjálfs sín
og ættleiíðar sinnar, verður þjóðin að hafa frjálsar
hendur. Hún þarf að vera sjálfri sér ráðandi, geta í
öllum efnum sett sjálfri sér lög eftir eðli sínu og ákvörð-
un, sjálf leitt sjálfa sig. Þess vegna telur hver heilbrigð
þjóð frelsið sitt dýrasta hnoss. Hún veit, að enginn nema
hún sjálf skilur til fulls þarfir hennar, hún veit að eng-
inn nema sjálf hún getur uppfylt óskir hennar, og það
er metnaður hennar að sýna mikilleik sinn í því, að setja
sjálfri sér lög og hlýða þeim. Hún veit, að þjóð, sem
hnýtt er aftan í aðra þjóð, verður brátt eins og orð, sem
hnýtt er aftan í annað orð, upphafleg merking þess hver-
fur smám saman, unz ekkert verður eftir nema ósjálfstæð-
ending. Ekkert annað en fullkomið sjálfstæði í öllurn
efnum getur því til lengdar fullnægt metnaði frjálsbor-
innar þjóðar. Og þó felhella eigingirni og lileypidóma sé