Vísir - 17.06.1944, Side 16

Vísir - 17.06.1944, Side 16
16 VlSTR Þ.TÓÐIIÁTÍÐARBLAÐ þessa lands, en án sinna eigin vökumanna, er hætt við að landið kynni að hafa gleymzt á sama hátt og eitt sinn skeði. Og þess vegna er það, sem fæð- ingardagur forystumamts þeirra á sér dýpri rætur í hugum lands- manna, en aðrir sögulegir dag- ar þjóðarinnar. Þann dag kvikn- aði það Ijós, sem skærast skein á leiðinni að hinu langþráða marki. Stjórnarskráin 1874 fékk Al- þingi löggjafarvaldið og fjár- ræði og þá fyrst verður þjóð- inni hægra um vik að beita sér fyrir þarfamálum landsins. Efn- in voru að vísu mjög rír, en „mjór er mikils vísir“. Hér biðu fleiri viðfangsefni úrlausnar en nokkuð annað land hefir orðið að leysa á jafn stutt- um tíma. Úreltir atvinnuhættir til lands og sjávar, samgöngu- leysi eða að minnsta kosti sam- göngudeyfa á láði og legi. Láns- stofnanir voru engar, hýbýla- háttur þjóðarinnar var aldir á eftir tímanum, nýtízku menn- ingartæki óþekkt og menntamál þjóðarinnar óraunhæf og ósam- ræmanleg kröfum hins nýja tíma. Jón Sigurðsson liefir sagt, að atorku, sparsemi og kunnáttu þurfi allstaðar og á öllum tím- um, ef vel eigi að fara og hann benti á nauðsyn þess að senda unga menn utan til þess að læra verzlunarrekstur og sjó- mennsku. Atorkuna átti þjóðin til og sparsemi hafði hún numið í skóla lífsins. Kunnáttunnar varð hún á hinn bóginn að afla sér* í flýti, ef mögulegt átti að verða að hagnýta sér þann sigur, er unnizt hafði. Eftir að landið hafði fengið stjórnarskrána 1874 rak hver viðburðurinn annan, en stór- stígastar verða þó framkvæmd- irnar eftir 1904, er stjórn lands- ins fluttist heim. Um 1880 var fyrsta hérlenda kaupfélagið stofnað. Voru það bændur í Þinegyjarsýslu, sem tóku sig saman og sendu út skipsfarm af lifandi sauðum til Englands, en fyrir andvirði hans keyptu þeir allskonar nauðsynj- ar. í fyrstu ráku þeir ekki opna sölubúð. Kaupfélagssamtökin voru sjálfsbjargarviðleitni bænda til að losna úr skulda- viðjum dönsku selstöðvakaup- mannanna. Kaupfélögin ætluðu sér að útiloka alla lánsverzlun, en í því ætlunarverki sínu hef- ir þeim aldrei tekizt að fram- kvæma áform sitt. Hins vegar er það deginum Ijósara, að þau hafa sem félagssamtök bænda átt þýðingarmikinn þátt í að örva þá til vöruvöndunar, en hún er hvað nauðsynlegust þjóð, sem er að vinna sér upp markaði. Þar til Landsbanki Islands var stofnaður 1885 voru pen- ingaviðskipti lítt þekkt hér á landi, og kaupmannastéttin innti af höndum hlutverk lánar- drottinsins. Viðskiptin fóru fram sem vöruskiptaverzlun jafnt utanríkisverzlunin sem innanlandsverzlunin. Stofnun Landsbankans 1885 var ráðstöf- un hins opinbera til að örva framleiðslu og verzlun lands- manna. Utanríldsviðskipti landsins námu þá einum 10 millj. kr. og fiskiveiðar lands- manna fóru fram eingöngu á opnum bátum. Strax eftir 1890 komu skúturnar til sögunnar og jókst fjöldi þeirra mjög um og eftir aldamótin. Það er þó ekki fyrr en vélbátarnir og togararn- ir koma til sögunnar sem hinn efnislegi grundvölluru er lagð- ur að framtíð landsins. Ásamt Landsbankanum annast nú tveir aðrir hankar og fjöldi útibúa peningaviðskipti landsmanna. Tímabilið frá 1885 og fram til vorra daga liefir tvímæla- laust verið mesta framfaratíma- bil þjóðarinnar. Að vísu hefir verið J)ó nokkur tröppugangur á þessari framfarabraut, og á það rætur sínar að rekja til þess að þjóðarbúskapur vor er mjög næmur fyrir alþjóðlegum liag- sveiflum (konjunktur), eins og að líkum lætur fyrir land með jafn umfangsmikla utanríkis- verzlun og vér rekum. 1939 var talið að utanríkisverzlun vor næmi 239 gullkr. á hvern ein- stakling, miðað við 197 gullkr. á hvern Dana, 146 gullkr. á hvern Norðmann, 162 gullkr. á hvern Svía, 107 gullkr. á hvern Breta og 66 gullkr. á hvern Þjóðverja. Frá því laust fyrir aldamótin og fram til loka 1943 hefir ut- anríkisverzlun þjóðarinnar orð- ið í krónum eins og eftirfarandi tafla sýnir: Aðflutt Otflutt Ár í millj. í millj. kr. kr. 1896—00 . . 5.9 7.0 1901—05 .. 8.5 10.4 1906—10 .. 11.5 13.7 1911—15 .. 18.1 22.3 1916—20 .. 53.7 48.4 1921—25 .. 56.5 64.2 1926—30 .. 64.8 66.1 1935 ... .. 45.4 47.7 1936 ... .. 43.1 49.6 1937 ... .. 53.3 59.0 1938 ... .. 50.5 58.6 1939 ... .. 64.2 70.5 1940 .... .. 74.2 133.0 1941 .... . 131.1 188.6 1942 ..... 246.9 200.4 1943 ..... 251.0 233.0 Tafla þessi sýnir þó ekki hina raunverulegu aukningu utan- ríkisviðskiptanna, þar sem mjög mikilla verðbreytinga gætir einkum á árunum 1916—20 og 1941—43, vegna áhrifa tveggja lieimsstyrjalda. Þess skal þó getið, að sé vörumagnsvísitalan 1935 lögð til grundvallar maghi aðfluttrar og útfluttrar vöru og hún látin jafngilda 100 var vísi- tala arsins 1942 fyrir aðfluttar vörur 211 og fyrir útfluttar vörur vörur 127. 4 Það sem annars er mest á- berandi í töflu þessari er hið áberandi jákvæði í verzlunar- jöfnuðinum. Síðan 1939 hefir jöfnuður þessi orðið landinu hagstæður um 58.6 millj. kr., en þessi upphæð er aðeins brot af þeirri upphæð, sem greiðslu- jöfnuður landsins sýnir okkur í hag nú. Island, sem hafði um áratuga skeið verið skuldunaut- ur á hinum erlenda peninga- markaði, hefir orðið kapítalút- flytjandi í stórum stíl síðastlið- in ár. Oss hafa safnazt gildir sjóðir, sem ættu að geta orðið landi og þjóð til farsældar og Idessunar í náinni framtíð. Um aldamótin var tala verzl- ana í landinu orðin yfir 200, og voru þrír fjórðu hlutar þeirra í eigu landsmanna sjálfra. Við- skiptin fóru þá eingöngu fram á smásölugrundvelli og nutu þau milligöngu erlendra um- boðssala. Landsmenn nutu af þeirri ástæðu .ekki alltaf sem hagkvæmastra kjara. Eftir að ritsímasambandið komst á við útlönd byrjuðu Islendingar sjálfir að fást við umboðsverzl- un og fjölgaði slikum verzlun- um mjög á stríðsárunum 1914 —18. Hófust mörg þeirra handa um heildsölu ásamt umboðs- sölunni, en þegar hér var kom- ið málum, var hin unga íslenzka kaupmannastétt þess megnug að afla innflutningsvarningsins við lægsta fáanlega verði, auk l>ess sem stéttin flutti nú heild- * söluágóðann inn í landið á sama hátt og smásöluhagnaðinn rúm- um þrjátíu árum áður. Hér á eftir fer tafla yfir fjölda verzl- ana frá 1855—1940: 1855 . .. 58 1919 . .. 422 1870 . .. 62 1920 . .. 803 1880 . .. 78 1930 . . 1043 1890 . . 137 1940 . . 1152 1900 . . 208 1942 . . 1142 Árið 1942 greindust þessar verzlanir i 132 heildverzlanir, 974 kauptúnaverzlanir og 36 sveitaverzlanir. Er nú svo kom- ið ,að öll verzlunin er í hönd- um landsmanna sjálfra. 1917 stofnuðu íslenzkir kaup- menn Verzlunarráð Islands, er vinna skyldi að hagsmunamál- um stéttarinnar út á við. Sama ár tóku kaupfélögin i landinu sig saman og stofnuðu Samband íslenzkra samvinnufélaga, sem annast heildsöluviðskipti fyrir hönd flestra kaupfélaganna. Án efa má telja stofnun ís- lenzks eimskipafélags eitt stærsta sporið, er þjóðin hefir stigið ,í áttina til endurheimtu ó efnalegu sjálfstæði sínu. Skipastólslaus gat þjóðin ekki verið lengur, ef hún ótti að geta sótt frelsi sitt og fullveldi í hendur Dana. Hin framtaks- sama og stórhuga kynslóð, er kom fram á sjónarsviðið eftir 1874, hafði tekið sér fyrir hend- ur að leggja akfæra vegi um hið strjálbýla land í stað kráku- stíganna, sem hrosshófur óg sauðarklauf hafði markað í þús- und ár, og hafizt handa um ræktun landsins, lagt undir sig djúpmiðin, svo unnt yrði að færa margfalda björg í þjóðar- búið á við það, sem áður þekkt- ist, reist skóla, stofnað banka, svo hægt yrði að efla atvinnu- rekstur landsmanna og gert verzlun og viðskipti þjóðarinn- ar svo að segja alíslcnzk. Var nokkuð eðlilegra en að einmitt þessi sama kynslóð lyfti líka því Grettistakinu, sem fullveldinu var hvað mest þörfin á, stofnun íslenzks eimskipafélags, er tekið gæti upp siglingar til landsins og frá, og annazt nauðsynlegar strandferðir. Stórliugur hennar bannaði henni að láta byrjunar- örðugleikana aftra sér frá fram- kvæmd þessa þjóðþrifamáls, sem verzlun og viðskipti liins komandi fullvalda og frjálsa ís- lenzka ríkis krafðist. Með stofn- un Eimskipafélags Islands hafði þjóðin gert sér það að fullu ljóst, að velmegun þessa lands grundvallaðist á því, að hún tæki aftur sinn gamla sess sem siglingaþjóð. Það var bjart yfir þessum órum, verzlunin og sigl- ingarnar voru á ný i höndum landsmanna sjálfra. Þjóðin hafði skilið til fulls vitjunartíma sinn í þeirri pólitísku og efna- legu sjálfstæðisbaráttu, er hún háði. Árið 1913 er talið að skipa- kostur landsmanna hafi numið 7822 smálestum, en 1939 var smálestafjöldinn orðinn 20.593. Ástandið er þó að því leyti ó- fullnægjandi, að enn þarf marg- an erlendan kjölinn til að anna flutningsþörf vorri, en það virð- ist ekki vera óeðlilegt, að þjóð- in geti í framtíðinni haft tekj- Framh. á bls. 115.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.