Vísir - 17.06.1944, Síða 34
I
34
VÍSIR — ÞJÖÐHÁTÍÐARBLAÐ
' Hlutafélagið Kol & Salt er
stofnað árið 1915 til að reka
verzlun með kol, koks og salt,
og verzlar félagið ennþá með
þessar vörur eingöngu, þótt
margt hafi breytzt, bæði af-
greiðslubættir og kröfur’ al-
mennings á þeim tíma, sem lið-
inn er frá stofnun félagsins. Fé-
lagið keypti i upphafi verzlun-
ina „Timbur og kol“, er var
eign Björns Guðmundssonar,
og rak verzlun þessa með litl-
um breytingum fyrst í stað.
Þessi verzlun var hin stærsta
í sinni grein hér á landi á þeim
tíma, og hefir H.f. Kol & Salt
ætíð síðan notið mestu vin-
sælda, og alltaf verið stærsta
kolaverzlun landsins.
Árið 1926 keypti félagið kola-
hegra sinn og var smíði hans
lokið 1927. Var hegranum ætlað
að annast upp- og útskipun kol-
anna, sem þá var orðið nauð-
synlegt að gengi sem fljótasl,
m. a. vegna þrengsla í höfninni
á vertiðinni. Er hegrinn eitt af
meiri mannvirkjum bæjarins
og setur sinn svip á höfnina.
Meðal þess eftirtektarverð-
asta af þeim nýjungum, sem
félagið hefir tekið upp, má
nefna afhendingartrektir fyrir
kol. F2ru það háar trektir, sem
taka allt að 50 smálestum í
einu. Er kolunum lyft upp í
trektir þessar með hegranum,
en síðan er þeim lileypt yfir
ristar og hörpuð, áður en þau
renna niður í poka, sem um
leið eru vegnir og síðan látnir
á bíla. Trektirnar opnast og
lokast með vogarstöng og get-
ur æfður viktannaður fyllt
poka og vegið með 1—2 hand-
tökum. 1 sumum tilfellum eru
kolin látin úr trektunum laus
á bíla og bílunum síðan ekið
yfir bilavigt. Bílavigt þessi,
sem er ein hin fyrsta, sem
komið var upp hér, er byggð
af Landssmiðjunni 1933. Getur
hún vegið allt q,ð 6 smálestum
í einu. Það er óþarfi að benda
á, hve tæki þessi flýta stórum
fyrir afgreiðslu, enda þolir fé-
lagið samanburð við fremstu
samskonar fyrirtæki erlend,
hvað afgreiðslu snertir.
I fyrstu bar nokkuð á óvild
verkamanna í garð kolakran-
ans. Álitu verkamenn að at-
vinnumöguleikar þeirra við
höfnina mundu stórum rýrna,
þar sem jafn afkastamikið tæki
var sem kolakraninn. En brátt
skildist þeim, að eigi þýddi að
sporna við því, að tæknin ryddi
sér til rúms hér sem annarstað-
ar, og nú mun það Vera ósk
þeirra, að fleiri sýni þá djörf-
ung, að flytja til landsins öfl-
ugar vélar, þar eð aldrei hefir
komið betur í Ijós en nú, hve
fámenn verkamánnastéttin er,
miðað við verkefnin, sem fyr-
ir hendi eru.
Kol & Salt hefir átt því láni
að fagna, að geta haldið sömu
verkamönnuum í þjónustu
sinni árum saman, og mun það
fátítt, þar sem eingöngu um
erfiða vinnu er að ræða. Vinnu-
hraða félagsins er viðbrugðið,
og má þakka það dugnaði og
skyldurækni verkamanna og
verksviti og áhuga verkstjór-
ans.
Kol & Salt hefir kunnað að
meta verkamenn sína og hafa
forráðamenn félagsins reynt að
bæta aðbúnað þeirra eftir
mætti. Það síðasta, sem félagið
hefir gert í þeim efnum, er að
koma fyrir búningsherbergjum
og böðum fyrir verkamennina,
og geta þeir nú að morgni kom-
ið í þokkalegum fötum til
vinnu og klæðzt þar vinnuföt-
um sínum. En að afloknu dags-
verki fara þeir úr vinnufötum
sínum, taka sér bað og halda
síðan heimleiðis hreinir og
þokkalegir til fara. Hér er um
algera nýlundu að ræða, sem
má telja nauðsynlega, þar eð
híbýli verkamanna bjóða í
fæstum tilfellum upp á það
góð hreinlætistæki, að mikili
hluti hvíldartíma verkamanna
fari ekki í það, að þrífa sig
eftir erfiði dagsins.
Árið 1931 var hagur Kol &
Salt orðinn mjög þröngur, eins
og hagur.flestra félaga var þá,
er verzluðu með útgerðarvör-
ur. Stórar inneignir félagsins
hjá útgerðarfélögum fengust
ekki greiddar og hvergi bætt-
ar, og rak loks að því, að fé-
lagið hefði þurft að hætta starf-
semi sinni, ef ekki hefði fengizt
að láni erlent rekstrarfé, sem
gat rétt við fjárhag félagsins.
En þótt fjárhag félagsins væri
með þessu borgið um óákveð-
inn tíma, þá hafði það að sumu
leyti glatað sjálfstæði sínu, þar
eð hinir erlendu skuldareigend-
ur höfðu ótvíræðan rétt til að
hlutast til um rekstur félagsins.
Á síðastliðnu ári átti félagið
því láni að fagna, fyrir milli-
göngu góðra manna, að fluttar
voru inn í landið allar eignir
og kröfur þvi viðkomandi, og
er Kol & Salt nú rekið á ný
sem alíslenzkt fyrirtæki.
Fyrir nokkrum vikum keypti
Kol & Salt Kolaverzlun Ólafs
Ólafssonar og hefir bætt verzl-
un þeirri við rekstur sinn.
Einn af verka-
mönnum Kol &
Salt tekur sér
bað á vinnustað.