Vísir - 17.06.1944, Síða 47
Á síðari áruni hefir orðið
gagngjör breyting á byggingar-
lagi Islendinga við það, að farið
var að nota járnbenta stein-
steypu. Þetta byggingarefni hef-
ir þann kost, að það er margfalt
endingarbetra en timbur og
bárujárn og ekki mun dýrara.
Framan af var það ein af aðal-
mótbárunum gegn steinsteyp-
unni, að hún myndi ekki þola
jarðskjálfta, að hús úr henni
myndu hrynja í jarðskálftum.
Nú vita allir, að hús úr henni
eru sterkustu byggingar sem til
eru.
Það er heldur ekki langt síðan
tekið var að innrétta hús með
þeim nýtízku þægindum, sem
nú eru talin ómissandi, baðher-
bergjum, vatnssalernum, mið-
stöðvum og þessháttar. Má yf-
irleitt segja, að Islendingum hafi
verið aðrar listir tamari en að
byggja vönduð og vistleg hús,
enda eru þau ekki að ráði byggð
fyrr en innlendir húsameistarar
og verkfræðingar taka að segja
fyrir um byggingar hér heima
fyrir.
Jón heitinn Þorláksson er
annar í röðinni af íslenzkum
verkfræðingum, er til starfa
taka hér á landi. Gætir handtaka
hans og dugnaðar víða um land,
þótt hans sé nú orðið oftar get-
ið í sambandi við hin miklu
störf, er síðar hlóðust að hon-
um, fyrst sem ráðherra landsins
og síðar sem borgarstjóra
Reykjavíkurbæjar.
Firmað J. Þorláksson & Norð-
mann kemur mjög við sögu
þessa nýja byggingarháttar. Það
er stofnað árið 1923 undir því
nafni, sem það hefir nú, en er
í raun og veru miklu eldra. Þeg-
ar Jón Þorláksson sagði af sér
landsverkfræðingsembættinu
árið 1917, sem hann hafði gegnt
frá þvi árið 1905, stofnaði hann
verkfræðiskrifstofu og annaðist
á næstu árum ýmisleg verk-
fræðistörf, bæði fyrir einstak-
linga og bæjarfélög. Meðal ann-
ars gerði hann á næstu árum
frumdrætti að Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, gerði vatnsveituna
á Akureyri o. fl. En jafnframt
tók hann að reka verzlun með
allskonar hyggingarefni, svo
VÍSIR — ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ 47
fi lloriðt
sem cement og járn. Hafði hann
meiri reynslu um hina nýju
byggingaraðferð en menn höfðu
almennt hér á landi í þá daga.
Rafstöðvarlujsið við Elliðaár
reisti hann, og með tilboði sínu í
þá byggingu sannaði hann, að
hægt var að bvggja vönduð
steinsteypuliús, án þess að verð-
ið færi fram úr hófi.
Jóni Þorlákssyni var falin yf-
irstjórn framkvæmdar Flóa-
áveitunnar og vann hann mest
að undirbúningi þess máls sjálf-
ur, en hafði síðar aðra verk-
fræðinga sér til aðstoðar, er
önnur störf hlóðust á hann.
Cement var þegar frá byrjun
aðal innflutningsvara verzlunar-
innar, og svo er enn í dag.
Firmað hefir aðallega flutt inn
Portland cement frá Danmörku
og Bretlandi, en^einnig nokkuð
frá öðrum löndum, eftir ástæð-
um. Hefir það að jafnaði all-
miklar hirgðir fyrirliggjandi í
Reykjavík. Síðan á öndverðu
ári 1940 hefir æement að lang-
mestu leyti verið flutt inn frá
Bretlandi, og hefir sá innflutn-
ingur gengið vonnm betur.
Af öðrum byggingavorum,
sem verzlunin hefir haft og hef-
ir ennþá á l)oðstólum, eftir því
sem innflutningur er leyfður og
möguleikar á að útvega, eru
þessar helztar:
Þakjárn og slétt járn, allskon-
ar saumur, þakpappi, gólfdúk-
ar, flókapappi, gólf- og veggflís-
ar, steypustyrktarjárn, veggja-
plötur, eldfæri, þvottapottar.
Svo má telja sem sérgrein alls-
konar miðstöðvar- og hreinlæt-
istæki, svo sem katla, ofna,
vaska, handlaugar, vatnssalerni,
svo og pípur, tengistykki, krana
og allt efni í slikar leiðslur og
venjulegar vatnsleiðslur. Enn-
fremur má nefna vélar og áhöld
til bygginga, svo sem stein-
steypuhrærivélar, stevpumót til
pípnagerðar, allskonar dælur o.
s. frv. Og síðast enf ekki sízt
Sika-cementsþéttiefnin, sem
hafa rutt sér mjög tií rúms á
síðari árum. Eru það nokkrar
tegundir, sem notaðar eru, eftir
því sem við á í hvert sinn, og
myndá fullkomna rakavörn. —
Raki í kjöllurum þarf nú hvergi
að vera, ef rétt er á haldið.
Verzlunin er orðin svo um-
fangsmildl i þessum greinum, að
fæstir munu hyggja liús nú á
tímum án þess að leita þangað
með kaup á einhverju, er þeir
þurfa til byggingarinnar, enda
mun hún hafa á boðstólum
mesta fjölbreytni allra íslenzkra
verzlana í l)yggingarefnum.
Jón Þorláksson varð brátt svo
störfum hlaðinn, að hann þótt-
ist ekki geta sinrit verzluninni
sem skyldi og náði til sín Ósk-
ari Norðmann (1921), sem hafði
numið verzlunarfræði í Kaup-
mannahöfn, að afloknu stú-
dentsprófi hér. Varð Ó. N. með-
eigandi í firmanu 1923, en þá
var nafnbreyting gerð eins og
áður er getið, og hefir hann
starfað við verzlunina alla tíð
síðan. Firmað er nú eign frú
Ingibjargar Cl. Þorláksson og
Ó. Norðmann. Það er sameign-
arfélag, rekið með ótakmarkaðri
ábyrgð eigenda, eins og það
liefir verið frá byrjun. Skrif-
stofur og aðalafgreiðsla eru í
Bankastræti 11, en vörugeymsl-
ur einnig víðar. *
Árið 1939 gekkst firmað fyrir
stofnun hlutafélags, er keypti
steinsteypuverkstæði Einars
Magnússoriar við Skúlagötu. Er
J. Þ. & N. aðalhluthafi, og sér
um rekstur þess fyrirtækis,
sem heitir h/f Steinsteypan.
Framleiðir það ýmsar bygging-
arvörur, svo sem steyptar píp-
ur, holstein, hleðslustein, vikur-
holstein og vikurplötur til ein-
angrunar, svo og hlifar fyrir
jarðstrengi. Plássleysi hefir
hamlað mjög framkvæmdum
þarna, en nú verður bót á því
ráðin, með því að hafizt var
handa um nýhyggingar á sl. ári,
og er þeim nú senn lokið.
Það er talandi dæmi um þær
miklu breytingar, sem orðið
hafa á seinni árum, að mikill
hluti af þeim byggingarvörum,
sem firmað J. Þorláksson &
Norðmann verzlar með, voru
sumpart óþekktar hér á landi
fyrir hálfri öld. Cement var þá
sáralítið notað til hygginga,
vatnsleiðslupípur hvergi til á
landinu, nriðstöðvar óþekktar,
járnbent steinsteypa og gólf-
dúkar nær óþekkt, fráræzlur og
vatnssalerni hvergi til og vélar
engar notaðar til húsbygginga.
Þá má geta þess, að það er
ekki fyrr en nýlega, að tekið er
að framleiða íslenzkar bygging-
arvörur, til dæmis holstein og
einangrunarplötur. En slík
framleiðsla getur flýtt ákaflega
l'yrir byggingum og gerir raun-
verulega byggingar færar, þar
sem ekki hefði verið hægt að
ráðast í þær að öðrum kosti.
Með vaxandi þekkingu í
byggingum, sem hinir fyrstu ís-
lenzku verkfræðingar fluttu
með sér frá útlöndum, hafa orð-
ið þær stórbreytingar, sem
menn ekki gera sér grein fyrir
í fljótu bragði. Og í kjölfar
þeirra breytinga hlutu að rísa
upp verzlanir, sem fullnægðu
kröfum hins nýja tíma. Firmað
J. Þorláksson & Norðmann
verður ævinlega talið framar-
lega í flokki þeirra.
Firmað hefir á löngum starfs-
tíma getað aflað sér beztu fáan-
legra sambanda í öllum helztu
hyggingarvörum og innanhúss-
tækjum. Jafnframt kostar það
kapps um að liafa jafnan nægar
vörur á boðstólum, til þess að
geta á hverjum tíma greitt sem
bezt fyrir byggingarhraða. En
ef slíkar vörur væru ekki jafn-
an til taks, myndu byggingar
þurfa að tefjast óeðlilega. -— Á
síðustu tímum hefir þetta ekki
reynzt auðvelt verk, og hefir
þurft árvekni og sívakandi á-
huga til að geta náð til lands-
ins hinum brýnustu nauðsynj-
um. En með kostgæfni og lip-
urð hefir tekizt að afla alls þess,
er nota hefir þurft, án þess að
til verulegra tafa hafi þurft að
koma, og er það afrek, sem
fæstir gera sér grein fyrir,
hversu nrikið er, eða hverja þýð-
ingu það hefir haft. Getur firm-
að því horft fram á við og búið
sig undir verkefni framtíðar-
innar, en allt bendir til að bygg-
ingar muni fara mjög í vöxt á
næstu árum, þótt mikið hafi
verið byggt á undanförnum
árum.