Vísir - 17.06.1944, Side 76

Vísir - 17.06.1944, Side 76
76 VÍSIR — ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ Landspítalinn. 1924 hefur Rauði Kross Is- lands göngu sína, sem deild úr alþjóðafélagsskap. Ilefir félag þetta beitt sér fyxár merkum málum á sviði heilbrigðismála, reist sjúlcraskýli, kostað hjúkr- unarkonur til starfa á stöðum, þar sem þörf hefir verið mildl fyi'ir hjúkrun, en erfitt að ná til læknis. Þá hefir Rauði Kross íslands haldið uppi mörgum námskeiðum til kennslu í hjúkr- un og skyndiaðgerðum. Sjúkraflutninga hefir félag þetta annazt um land allt af miklum dugnaði. Má vænta þess, að mikil og góð verk eigi félag þetta enn eftir að inna af höndum. Árið 1930 eru 36 sjúkrahús og sjúkraskýli starfandi í land- inu, með eitt þúsund sjúkrárúm- um. Er þetta meira átak en nokkur þjóð liefir af lxendi leyst, miðað við tíma og fólksfjölda. Þá hefir öllum úthúnaði sjúkra- húsa og aðbúnaði sjúklinga þar fleygt mjög fram. Fleiri læi’ðar hjúkrunarkonur hafa verið ráðnar til sjúkrahúsanna, og öll tæki fjölbreyttari og fullkomn- ari, þar á meðal ljósa- og Rönt- gentæki (allviða). Heilbrigði landsmanna er enn i greinilegri framför, og ber ör fólksfjölgun og * minnkandi manndauði vott þess. Þó fer berklaveikin sífellt í vöxt, þrátt fyrir ýmiskonar ráðstafanir, og berklahæli, og nær hámarki 1930. Þá deyja úr berklaveiki hér á landi 232 manneskjur. Holdsveikin minnkar stöðugt, og eru taldir aðeins 35 sjúlc- lingar þetta ár, og sama máli gegnir um sullaveikina. Má vænta þess, að verði i náinni framtíð jafn ötullega unnið að útrýmingu þessara sjúkdóma, þá liði ekki langir timar þar til báðir eru útdauðir meðal lands- manna. Mannfjöldi 1930 er 108,629. Og ungbarnadauði 53 af þús- undi. (I Danmörku 82, Svíþjóð 58, Noregi 49, Bretlandi 70, Finnlandi 88. Þýzkalandi 94, Nýja Sjálandi 37). Má af þessu stutta yfirliti og fáu tölum sjá, að hvað ungbarnadauða snertir stöndum við mjög fi’amarlega, einum tólf árum eftir fengið sjálfstæði i eigin málum. Bilið styttist nú óðum til þess tíma, er við stöndum í. Og segja má með sanni, að mjög merki- leg og rnörg mál hafi ýmist ver- ið leyst eða í undirbúningi með að leysast. Yfirmaður heil- brigðismála hér á landi, núver- andi landlæknir, Vilmundur Jónsson, hefir stuðlað að fram- gangi mjög merkra lagafyrir- mæla, sem aðrar þjóðir gætu tekið til fyrirmyndar, á sviði heilbrigðismála, og ekki sízt hef- ir hann verið frumkvöðull stór- merkilegrar baráttu gegn berklaveikinni í landinu. 1930 er Landsspítalinn full- í'eistur og tók til stai'fa seinni hluta þess árs. Þar með var lok- ið átaki, sem einstakt mun vera, þó viða sé leitað meðal menn- ingarþjóða lieims, þegar tekið er tillit til fólksfjölda landsins. Landsspitalinn er langvegleg- legasta sjúkrahús landsins, og hefir alla forystu hvað snertir sjúkrahúshald í landinu. Er hann búinn hinurn fullkomn- ustu tækjum til aðgerða og rannsókna. Þrir af kunnustu og færustu læknum landsins völd- ust þegar i byrjun til fornstu ]>ar, þeir Guðmundur Thorodd- sen, Jón H. Sigurðsson og Gunn- laugur Claessen. «?io 1920 1930 Sullaveiki 1911 -1939. Dauðir ,,,wúr sullaveiki. — baráttunni við berklaveikina, sem með ári hverju verður erf- iðai’i viðfangs. Árið 1911, þegar fullkomnar dánarskýrslur hefj- ast, deyja 114 landsmanna úr þeirri veiki. En árið 1918 deyja 173. Læknum og löggjöfum er það Ijóst, að svo búið má eigi standa, og eru höfuðátökin í heilbrigðismálum þessai’a ára um berklalöggjöfina. 1921 er á- kveðið hvað gera skuli: ein- angra berklasjúklingana og tryggja þeim ókeypis hælisvist. Að þessum ráðstöfunum var vitanlega mikil bót, þó mikið vantaði að kæmi að fullu haldi. Þá var ekki lögð megin áherzla á það, að leita uppi smitbera, sem víða geta leynzt, án þess vitað sé, enda erfitt þá, vegna skorts á handhægum Röntgen- tækjum. önnur merk lög frá þessum árum voru varnir gegn kyn- sjúkdómum. Með stórauknum samgöngum við útlönd hafði tala slíkra sjúklinga aukizt til muna í land- inu, og var ætlunin með lög- um þessum að bæta úr brýnni þörf. Á tímabilinu frá 1918—1930 vaknar stéttaráhugi fólks þess, er vinnur að heilbrigðismálum. Samtök þessi gengu bæði i þá átt að auka menntun stéttanna, Og miðuðu eins að því, að bæta kjör og stéttarsamheldni. Árið 1919 stofna íslenzkar hjúkrun- arkonur félag sín á millum, er mjög hefir komið við sögu heil- brigðismálaima hér á landi. Til þessa tíma höfðu hjúkrunar- konur sótt menntun sína til út- Ianda, en eftir því sem sjúkra- húsum fjölgaði, varð fyrirsjá- anlegur skortur á lærðum og æfðum hjúkrunarkonum. Lét Iiinn nýi félagsskapur strax til sín taka um skipulagningu hjúkrunarfræðslu. Var nem- endum ráðstafað til náms i hin stærri sjúkrahús á landinu og síðan til framhaldsnáms erlend- is, og haldið i þvi horfi þar til Landspítalinn tók til starfa. Má fullyrða, að vel hafi verið haldið á málum þessum, og hjúkrunar- konur okkar, sem nú er fjöl- mennur hópur, haldi merkinu hátt. Merku blaði hefir félags- skapur þessi haldið úti um langt skeið. Þá er saga islenzku ljósmæðr- anna merkileg. Störf Ijósmæðra hafa yfirleitt verið ákaflega erf- ið hér á lándi, sérstaklega úti í dreifbýlinu, og má segja, að hér áður fyrr hafi oft og tíðum verið fyrsta og eina hjálpin, á- vallt tilbúin að gegna hinum erfiðu störfum, hvernig sem á stóð. Stendur þessi þjóð í svo mikilli þakkarskuld við ljós- mæður fyrr og siðar, að senni- legt þykir mér, að sú skuld verði seint goldin. Nú er svo komið, að við eig- um vel menntaðar ljósmæður í flestum byggðum landsins. I áratugi unnu ]>ær fyrir smánar- borgun, en nú síðustu árin hafa þær notið hærri launa en áð- ur, og eins eftirlauna að störf- um loknum. ísland er nú eitt þeirra landa. sem minnstan barnadauða hefir, og býst eg við, að þakka beri það okkar góðu Ijósmæðrum öðrum fremur. 1918 stofna þær „Ljósmæðra- félag Islands", og hafa haldið út merku stéttarblaði. Nú hefir Landspítalinn tekið að sér ljós- mæðrakennsluna, og má full- yrða, að ljósmæður hér á landi standi starfssystrum sínum er- lendum fyllilega á sporði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.