Vísir - 17.06.1944, Síða 90
90
VÍSIR — Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARBLAÐ
Blóm og Ávextír.
Blómakveðjur og blóma-
skraut er þegar orðið svo al-
gengur þáttur í daglegu lífi
manna, að fæstir minnast þess
einu sinni, að það er ekki langt
síðan að mjög erfitt var að út-
vega blóm til skreytinga. Við,
sem enn erum ekki miðaldra,
munum glöggt, að lengi var það
alsiða að fólk gengi um íbúða-
hverfi, svipaðist um eftir fall-
egum gluggablómum og berði
síðan að dyrum til að spyrja,
hvort hægt mundi vera að fá
gluggablómin keypt.
Það eru ekki enn liðin 14,
síðan blómaverzlunin Blóm og
Ávextir var stofnuð, en með
stofnun hennar má telja að stórt
spor hafi verið stigið i þá átt
að auka möguleika almennings
til að fá falleg og hentug blóm
keypt og möguleika garðyrkju-
manna til að selja á reglulegum
markaði.
Þær frúrnar Ásta Jónsdóttir
og ölafia Einarsdóttir stofnuðu
þessa nýtízlcu blómaverzlun sína
30. nóvember 1930, i húsi Mjólk-
urfélags Reykjavíkur, sem þá
var nýbyggt.
Á Reykjum í Mosfellssveit
hafði þá verið reist eitt hinna
fyrstu gróðurhúsa, sem rekin
voru með hverahita. Byrjunin
var smá, en það var til mikilla
óþæginda fyrir eigendur húss-
ins, að mjög erfitt var að kom-
ast í samband við reglulega út-
sölu. Þær frúrnar stofnuðu því
verzlun sína meðal annars með
það fyrir augum, að geta ann-
azt útsölu fyrir þessa starfsemi.
Fyrst í stað fullnægði íslenzka
framleiðslan hvergi nærri eftir-
spurninni. Almenningur hænd-
ist þegar að hinni myndarlegu
blómabúð, þar sem gott var að
koma, angandi blóm og litfögur,
hlýlegt viðmót og áreiðanleg af-
greiðsla. Varð það því úr, að
talsvert var innflutt af blóm-
um fyrst í stað, aðallega frá
Bergen, en þaðan voru hrað-
astar ferðir og minnst hætta á
skemmdum. Á þann hátt var
flutt inn talsvert af nellikum
og krýsantemum, auk potta-
blóma. Jólin næstu á eftir var
einnig flutt inn nokkuð af
eucalyptus-greinum og solan-
um-aldinum frá Italíu með flug-
vél. Þessar greinar og aldini
voru sérstaklega hentug til
skreytinga á jólakörfum.
En þessi starfsemi tók skjótt
breytingum. Áður en varði voru
íslenzku gróðurhúsin farin að
framleiða nægilega mikið fyrir
markaðinn, enda fjölgaði þeim
ört, um leið og framleiðsla óx
og varð fjölbreyttari. Jafnframt
var innflutningshöftunum kom-
ið á, og lagðist þá mikið af inn-
flutningnum niður af sjálfu sér.
En á sama tíma tókst blóma-
verzlunmni að auka mjög á f jöl-
breytni varningsins, og var það
auðvitað að þakka aukinni
framleiðslu innanlands og hug-
kvæmni eigendanna .
Það er nefnilega ekki nóg að
hafa úrval af fallegum blómum
til sölu. Kaupendur vilja gjarn-
an kaupa varning sinn öðruvísi
en upp á hinn venjulega máta.
Margir vilja helzt eingöngu af-
skorin blóm eða blóm í pottum.
En hinir eru ekki færri, sem
gjarnan vilja kaupa blómakörf-
ur til tilbreytingar. Það er mikil
list, að skreyta fallega körfur,
og það er heldur ekki auðlært.
Utanlands er þetta algengt nám,
sem þær stúlkur verða að ljúka,
sem starfa vilja í blómabúðum.
Þær frú Ásta og frú Ólöf kom-
ust brátt vel niður í þeirri iðn
og réðu sér auk þess þaulæfða
stúlku frá Noregi til þess að
annast blóma- og kranzabind-
ingar.
I árslok 1938 seldu þær
frúrnar blómabúðina Mjólkur-
félagi Reykjavíkur, sem rak
hana um skeið í sambandi við
matvöruverzlunina Liverpool.
Gátu þær þá horft um öxl yfir
skemmtilegt starf, þótt oft væri
erfitt og erilsamt, og mun þeim
hafa vel líkað, hversu vel starf
þeirra hafði tekizt og giftusam-
lega.
verzlunina árin 1939 og 1940,
en seldi hana síðan hlutafélagi,
sem stofnað var undir nafninu
„Blóm og Ávextir h.f.“ Voru
aðalstofnendur þeir Eyjólfur
Jóhannsson framkvæmdastjóri,
Bjarni alþingismaður Árgeirs-
son, Stefán Þorláksson í
Reykjahlíð, Lárus Björnsson og
Hendrik Berndsen. Þetta hluta-
félag rekur verzlunina nú, og
hefir Hendrik Berndsen verið
forstjóri þess frá upphafi.
Verzlunin er ennþá i’ekin
með sama sniði og frá upphafi,
þótt nokkrar breytingar hafi
orðið á húsnæði. Þó er nú svo
komið, að húsnæðið er of lítið
fyrir reksturinn, en úr þvi fæst
ekki bætt, meðan á núverandi
húsnæðisvandræðum stendur.
Það er gaman að litast um í
blómverzluninni, þegar allt ang-
ar af nýjum blómum og auganu
mætir yndislegt litskrúð og
fegurð, hvert sem litið er. Eins
og að undanförnu tekur verzl-
unin að sér ýmislegt er að blóm-
skreytingum lýtur, til dæmis
borðskreytingar í heimahúsum
og veizlusölum. En auk þess eru
í verzluninni bundnir alls kon-
ar kranzar og skreyttar blóma-
körfur. Þá eru og skreyttar kist-
ur og annazt um skreytingu
kirkna við jarðarfarir og
bundnir allskonar kranzar úr
lifandi blómum eða gerviblóm-
um og greinum.
En starfsemin tekur til ým-
issa fleiri greina. I verzluninni
er selt mikið af allskonar fræi
og plöntum, og Ieitar þangað
margur á vorin, ]>egar verið er
að lagfæra skraut- og matjurta-
garða. Þá er og seldur áburður,
sótthreinsandi meðöl og duft til
eyðingar á snýkjudýrum,
snýkjuplöntum og illgresi.
Loks eru til sölu allskonar
blómavasar og skrautmunir,
sem þykja hentugir til tækifær-
isgjafa og gott getur verið að
grípa til, þegar lítið er til af
blómum, en það^getur auðvitað
oft komið fyrir, ])ví að fram-
leiðslu er í slikum efnum aldrei
hægt að haga algerlega eftir
cftirspurn.
Þótt ekki sé litið yfir lengrr
tíma en tæp 14 ár, verður ekki
annað sagt cn að „Blóm og Á-
vextir“ geti litið um öxl yfir
merkilegan starfsferil. Verzlun-
in hefir fylgzt með þróun, sem
að ýrnsu leyti má telja einstæða
í atvinnumálum, ])ví að rekstur
hennar hefir verið nátengdur
gróðurhúsaræktinni. En sú al-
vinnugrein er orðin mjög merki-
leg og athyglisverð, Jjótt ung sé
og á efalaust eftir að hafa rík
og víðtæk áhrif í atvinnumálum
landsins.
Mjólkurfélag Reykjavíkur rak
Árið 1937 varð sviplegt sjólys við Faxaflóa, þegar franska rannsóknaskipið „Pourquoi pas?“ fórst
með allri áhöfn nemti einum háseta, sem bjargaðist. Myndin sýnir nokkra blómvendi, er þá voru
sendir um „Blóm og Ávexti“. I efri röð eru blómvendir Kristjáns konungs X-. íslenzku ríkisstjórn-
arinnar og danska sendiherrans, en í neðri röð kranzar frá franska konsúlnum og herskipunum
tyeim, er fluttu lík skipverja heim til Frakklands.