Vísir - 17.06.1944, Page 112

Vísir - 17.06.1944, Page 112
112 VÍSIR — ÞJÓÐHÁTÍÐ ARBLAÐ SVEINN VÍKINGUR: KIRKJA ÍSLANDS 1874-1944 I stjórnarskrá ríkisins seg- ir svo um kirkjuna: „Hin evan- geliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja íslands, og skal rílus- valdið að þvi leyti styðja hana og vernda“. Sams konar ákvæði voru einnig i stjórnarskránni frá 5. janúar 1874. Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu stjórnarskrárinnar um stuðning og vernd ríkisvaldsins til handa þjóðkirkjunni, og þrátt fyrir það, að hinar miklu eignir kirkjunnar hafa svo að segja allar runnið til ríkisins, verður þvi ekki með rökum í móti mælt, að á hinu stórfellda fram- faratímahili á öllum sviðum þjóðlífsins — árunum 1874— 1944 — hafa framfarir og um- hætur á sviði kirkjumálanna verið tiltölulega torsóttari og seingengari en við hefði mátt húast. Þó er ekki þar fyrir að synja, að nokkuð hefir þokazt þar í áttina á þessu timabili, þó gjarnan hefðu framfarasporin þar mátt og átt að vera stærri. Ber sízt að vanþakka, heldur virða og meta að verðleikum það, sem vel hefir verið gert í garð kirkjunnar, þó margt sé enn óunnið, og margra umbóta sé þörf í náinni framtíð. Skal nú gefið stutt yfirlit yfir það markverðasta, sem gjörzt hefir í kirkjumálunum hér á landi frá 1874 til þessa dags. Biskup og kirkjuráð. Eins og kunnugt er, var land- inu skipt í tvö biskupsdæmi ár- ið 1106, og hélzt sú skipan i nærri 7 aldir. Árið 1785 er Skál- holtsstóll fluttur til Reykjavik- ur, og skömmu síðar er Hóla- stóll niðurlagður og landið gjört að einu biskupsdæmi með kon- ungsbréfi 2. okt. 1801. íslenzk biskupsefni þurftu löngum að fara utan til vígslu, og eftir að biskupsembættið var orðið aðeins eitt, mátti búast við að vart yrði hjá slikum vigslu- ferðum komizt í framtíðinni. Þetta fyrirkomulag þótti ekki hcppilegt, og var jafnvel ekki laust við að sumum fyndist, að með þvi að sækja biskupsvígslu til dansks biskups, fælist óbein viðurkenning þess, að íslenzka kirkjan væri dönsku kirkjunni háð. Var því með lögum nr. 38 1909 stofnuð tvö vígslubiskups- embætti á landinu, auk biskups- embættisins. Er annar kjörinn af prestum í Skálholtsbiskuþs- dæmi forna, en hinn af prestum Hólabiskupsdæmis, og er starf þessara biskupa, eins og nafnið bendir til, einkum það að vígja nýja biskupa. Árið 1921 voru selt lög um biskupskosningu. Samkvæmt þeim tilnefna allir þjónandi prestar þjóðkirkjunnar og kennarar guðfræðideildar Há- skólans, hver um sig 3 menn sem biskupsefni, er biskups- embættið losnar. Sá er réttkjör- inn biskup, er fær % atkvæða. Fái enginn það atkvæðamagn, skal embættið veitt þeim þeiri’a þriggja, er flest atkvæði fengu, sem kirkjustjórnin telur bezt til þess fallinn. Núverandi biskup landsins er fyrsti biskupinn, "sem skipaður hefir verið sam- kvæmt lögum þessum. Með lögum frá 1931 var stofnað kirkjuráð hinnar ís- len^ku þjóðkirkju. Kirkjuráð skipa 5 menn: 2 guðfræðingar kjörnir af prestum þjóðkirkj- unnar, 2 menn kosnir á liéraðs- fundum og biskup landsins, sem er forseti ráðsins. Kirkjuráð hefir meðal annars ráðgjafaratkvæði og tillögurétt um þau mál, er kirkjuna varða og heyra undir verksvið löggjaf- arvaldsins. Það liefir og ráðstöf- unarvald yfir fé því, er lagt kann að verða til frjálsrar kirkjulegrar starfsemi eða ann- ara kirkjulegra þarfa. Þegar biskupsembættin voru sameinuð og biskupsstóllinn fluttur til Reykjavíkur, ráðstaf- aði ríkið hinum fornu biskups- setrum, Hólum og Skálholti. Þó hefir ekki enn — eftir meira en 140 ár — verið reist eða ákveðið varanlegt biskupssetur í Reykjavílc og biskuparnir ver- ið þar á hálfgerðum hrakningi til þessa. En vonandi verður úr því ófremdarástandi myndar- lega bætt á næstu árum. Prestarnir. Árið 1874 voru samtals 174 prestaköll á landinu. Prestarnir sátu þá við mjög misjöfn, en þó yfirleitt harla bágborin launalcjör, enda urðu þeir þá að innheimta laun sín sjálfir bjá söfnuðunum. Árið 1880 er svo prestaköll- unum fælckað með lögum úr 174 í 141, en jafnframt gerð nokkur launajöfnun binna mis- jöfnu brauða. Enn er prestaköll- unum fækkað 1907 (1. nr. 45, 16. nóv.) úr 141 í 105, og kom sú fækkun til framlcvæmda jafnótt og brauðin losnuðu. Síð- an hefir prestaköllunum verið fjölgað aftur lítilsháttar, svo að nú eru á landinu 112 prestaköll með 114 prestum, ef öll presta- lcöll eru setin. Jafnhliða prestafækkunarlög- unum 1907 voru kjör prestanna lítilsháttar bætt, þannig, að þeir prestar, sem þess æsktu, voru leystir frá þvi að innheimta sjálfir laun sín, en slcyldu í þess stað hafa i árslaun lcr. 1300,00, er hæklcaði eftir embættisaldri í allt að lcr. 1700,00. Með launalögunum 1919 voru prestslaunin hækkuð í kr. 2000,00, hækkandi 3. hvert ár upp í kr. 3000,00. Á allra síð- ustu árum hafa svo prestarnir, eins og aðrir starfsmenn, feng- ið nokkrar kjarabætur, sem þó enn eigi hafa verið lögfestar. Yfirleitt má því segja, að kjör prestanna hafi töluvert batnað Sveitakirkja að innan.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.