Vísir - 17.06.1944, Page 131

Vísir - 17.06.1944, Page 131
VÍSIR — Þ J ÓÐHÁTlÐ ARBLAÐ 131 aíS þau eru stærsta nýmælið, sem komið hefir fram á vett- vangi fræðslumálanna hérlend- is, og í öðru lagi er barna- fræðslan grundvöllur allrar framhaldsfræðslu og veltur því í raun og veru mest á henni. Námstjórar. Árið 1941 veitti Alþing nokkra fjárhæð til kennslueft- írlits í sveitum og sjávarþorp- um. Voru ráðnir til þess fjórir landskunnir kennaramenntað- ir menn, er nefnast námstjór- ar. Vinna þeir á vegum fræðslumálaskrifstofunnar. Þeir ferðast milli barnaskól- anna, lialda fundi með kenn- urum og skólanefndum, leið- beina uin kennslu og námstil- högun, prófa börnin og reyna að ráða bót á því, sem stend- ur í vegi fyrir betri kennslu- árangri. Hefir starf þeirra þeg- ar komið að góðu gagni og reynzt mikilvægt. Frá því fræðslulögin voru samþykkt og þangað til nú hef- ir mikil breyting til batnaðar orðið á skipulagi barnafræðsl- unnar. Föstum skólum hefir og mjög fjölgað, en farskólum fækkað. Skólabörn voru samtals á öllu landinu árið 1941—42 15.- 374. Samband íslenzkra barnakennara. Samband þetta var stofnað 1921. Er það arftaki Hins ís- lenzka kennarafélags, sem áð- ur hefir verið minnzt á. Hefir Samband íslenzkra barnakenn- ara unnið skóla- og uppeldis- málum þjóðarinnar mikið gagn og margþætt, þótt ekki sé unnt að greina frá þvi hér, vegna rúmleysis. Þó skal drepið á tvennt. Frá 1935 hefir það gefið út tímaritið Menntamál, sem flutt hefir margar athyglisverðar greinar um barnafræðslu og uppeldismál. Árið 1939 hélt Sambandið hátíðlega upp á 50 ára afmæli kennarasamtak- anna, og gaf þá út mikið rit, Sögu alþýðufræðslunnar á ís- landi, er Gunnar M. Magnúss, kennari, hafði samið. Er þetta stórmerk bók og eina íslenzka skólasagan, sem til er. Hefir höfundurinn viðað að sér geysimikinn fróðleik úr ýms- um áttum, raðað honum niður, fellt og bundið saman með skemmtilegri og skýrri frásögn. Var samning og útgáfa þessar- ar bókar hið mesta nauðsynja- verk, og er hún ómissandi öll- um, sem láta sig skóla- og fræðslumál varða, Kom þún sér t. d. vel við samningu þessa greinarkorns þvi að mikið er þaðan tekið. Sérskólar. Skóli fyrir mál- og heyrnar- laus börn hefir stai-fað i Reykjavík síðan 1904. Þar er einnig deild fyrir fávita. Áð- ur hafði farið fram dauf- dumbrakennsla að Stóra- Hrauni í Árnessýslu. Á Sól- heimum í Grímsnesi var fá- vitaliæli um nokkur ár, en lagð- ist niður 1943. Það var einka- eign. Stofnaði þá ríkið til hæl- is að Kleppjárnsreykjum, og voru fávitarnir fluttir þangað. Blindravinafélag Islands hef- ir síðan 1933 haldið uppi skóla- og vinnustofu fyrir blind börn og blint fólk. 2. Framhaldsskólar — Háskólinn. Elztu framhaldsskólar. Á síðasta fjórðungi nítjándu aldar fjölgaði framhaldsskólum í landinu töluvert. Þegar Þjóð- hátíðarárið rann upp 1874 voru þeir aðeins tveir: Latínuskólinn og Prestaskólinn. Tveinmr ár- um seinna var Læknaskólinn stofnaður. Kvennaskólinn í Reyk j avík var stofnaður 1874, eins og áður hefir verið getið, og jukust menn tunar möguleikar kvenna mjög á næstu árum þar á eftir. Voru þá tveir kvennaskólar settir á fót norðanlands, annar að Ási í Hegranesi, en hinn að Lækjamóti í Víðidal. Árið 1883 voru þeir sameinaðir og fluttir að Ytri-Ey. Á Blönduósi hófst kvennaskóli 1879, og á Lauga- landi i Eyjafirði starfaði kvennaskóli fyrir aldamótin. Kyennaskólinn i Reykjavík og kvennaskólinn að Blönduósi starfa enn. Árið 1887 hefst Flensborgar- skólinn, eins og fyrr er frá sagt. Þrem árum síðar hófu starf sitt tveir skólar, er frægir urðu á sirini tíð og jafnan munu þykja merkar fræðslustofnanir, en þeir voru Möðruvallaskólinn, þar sem Jón A. Hjaltalín var skólastjóri, og Búnaðarskólinn í Ólafsdal, sem stofnaður var fyrir framtak Torfa Bjarnason- ar og hann stjórnaði. Á niunda tug aldarinnar vöru stofdiaðir þrír búnaðarskólar: á Hólum i Hjaltadal 1882, Eiðum á Fljótsdalsheraði 1883 og á Hvanneyri i Borgarfirði 1889. Búnaðarskólinn á Eiðum lagðist niður 1917, en hinir tveir, bændaskólarnir á Hólum og Hvanneyri starfa enn. Allar þes8ar inenntaslofnftnir, sem nú hafa verið nef-ndar, unnu hið mesta menningargagn á siðustu áratugum nítjándu aldar. Þegar kemur fram á tutt- ugustu öldina sprettur upp fjöldi nýrra fræðslustofnana. Héraðs og gagnfræðaskólar. Áður en nokkur lög voru til um héraðsskóla höfðu skólar náskyldir þeim risið upp að Núpi í Dýrafirði 1906 og Hvítár- bakka í Borgarfirði 1905 fyrir áhuga og framtak þeirra síra Sigtryggs Guðlaugssonar að Núpi og Sigurðar Þórólfssonar á Hvítárbakka. En 1929, þegar Jónas Jónsson var kennslumála- ráðlierra, fékk hann þvi fram- gengt á Alþingi, að samþykkt voru lög um héraðsskóla. Hafði hann um langa hríð barizt fyrir þvi í ræðu og riti að slíkum skólum yrði komið upp í sveit- um landsins. Samkvæmt nefnd- um lögum skyldu héraðsskólar styrktir allríflega af ríkisfé og var nú framtíð þeirra tryggð. Þeim er ætlað að búa nemendur undir athafnalíf við íslenzk lífs- lcjör með bóknámi, vinnu- kennslu og iþróttum. Þeir eru tveggja vetra slcólar og starfa 6 mánuði árlega. Héraðsskólar eru nú að Núpi i Dýrafirði, Laugum í S.-Þingeyjarsýslu, Laugarvatni, Reykholti, Reykj- um í Hrútafirði og Reykjanesi við Isafjarðardjúp. Alþýðuskólinn á Eiðum er með sama sniði og héraðsskól- arnir, en er ríkiseign, en þeir sjálfseignarstofnanir. Þegar búnaðarskólinn á Eiðuni lagðist niður gáfu Múlasýslur ríkinu höfuðbólið á Eiðum með til- heyrandi jörðum gegn því, að þar yrði stofnaður alþýðuskóli, er ríkið kostaði að öllu leyti. Al- þýðuskólinn hóf starf sitt á Eiðum 1919. Árið 1930 voru samþykkt á Alþingi lög umgagnfræðaskóla. Sjö af kaupstöðum lanBsins, Hafnarfjörður, Isafjörður, Siglufjörður, Akureyri, Norð- fjörður, Vestmannaeyjar og Akranes hafa liver um sig sinn gagnfræðaskóla, en Reykjavík tvo. Eru þeir stofn- aðir samkvæmt nefndum lög- um, nema Gagnfræðaskóli Revkvikinga, sem er einkaeign og líefir sérstöðu. Hann starfar nú i fjórum ársdeildiun. Tvær neðri deildir samsvara að öllu gagnfræðadeild Menntaskólans í Reykjavik. en þriðia og fiórða deild þriðja og fjórða bekk Menntaskólans. Hinir gagn- fræðaskólarnir starfa í tveimur eða þremur ársdeildum liver. Markmið þeirra er að veita ung- mennum, sem lokið hafa fulln- aðarprófi barnaskólanna, kost á að afla sér frekari hagnýtrar fræðslu, bóklegrar og verklegr- ar, gera þá nýtari þegna þjóðfé- lagsins og hæfa til að stunda nám í ýmsum sérskólum. Skólarnir eru styrktir af rik- issjóði, en eru að öðru leyti kostaðir af viðkomandi bæjar- félögum. Frá því fyrir síðustu aldamót hafa ungtingaskólar starfað ár- lega í þorpum og sveitum lands- ins, 3—6 mánuði og sumir i tveimur ársdeildum. Síðustu ár- in hafa skólar þessir verið 30— 40. Víðast hvar eru þetta kvöld- skólar. Þeir fá nokkurn styrk úr ríkissjóði. Sérskólar kvenna. Kvennaskólinn í Reykjavík er elztur sérslcóla kvenna. Hann er í fjórum ársdeildum og tekur fyrsta deildin við stúlkum, er lokið hafa fullnaðarprófi úr barnaskóla. Námið er bóklegt og verklegt. Við skólann er einn- ig húsmæðradeild; eru þar venjulega tvö námskeið á ári. Kvennaskólinn á Blönduósi starfar með svipuðum hætti og húsmæðraskólarnir, en hús- mæðraskólar í sveitum starfa samkvæmt lögum frá 1928 og liúsmæðraskólar í kaupstöðum samkvæmt lögum frá 1941. Þessir skólar eru nú 7 samtals og á þessum stöðurn: Reykjavík, Staðarfelli i Dalasýslu, ísafirði, Laugalandi í Eyjafirði, Laugum i Suður-Þingeyjars., Hallorms- stað í Suður-Múlasýslu og Laugarvatni í Árnessýslu. Skól- ar þessir eru reknir af félögum eða einstaklingum. Staðarfells- skólinn er þó eign ríkisins og kostaður alveg af þvi. Hinir njóta ríkisstyrks. Tilgangur hus- mæðraskólanna er að veita kon- um liagnýta fræðslu til undir- búnings húsmóðurstöðu og þá kunnáttu og tækni, sem nauð- synleg er til að inna af hendi venjuleg heimihsstörf og stjórna heimili. Námstimi er eitt eða tvö skólaár. Skólaár miðast við sjö mánaða kennslu minnst. Námskeið eru viðast haldin við skólana. Námið er bæði bóklegt og verklegt. Auk þessara skóla, er nefndir liafa verið, er skóli i Hveragerði, er ungfrú Arný Filippusdóttir á og starfar með likum hætti og hús- mæðraskólarnir. Hann nýtur nokkurs ríkisstyrks. Húsmæðrakennaraskóli Is- lands var stofnaður 1942. Mark- mið lians er að veita stúlkum nægilega kunnáttu til þess að þær geti orðið kennarar við liús- mæðraskóla, matreiðslunám- skeið, kennslukonur í maL
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.