Morgunblaðið - 13.03.1999, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ákveðið að stöðva lyftuna
Fyrstu
farfuglarn-
ir komnir
FYRSTU farfuglar ársins hafa
sést á suðausturhorni landsins.
Það voru þrír sílamávar sem
sáust við Höfn á Hornafirði í vik-
unni en sflamávurinn er jafnan
fyrstur farfugla á vorin.
Þá hefur álftum farið fjölgandi
á Nesjum við Hornafjörð, sem
bendir til að þær séu byijaðar að
koma erlendis frá. Þá hafa þrjár
duggendur sést við Höfn og einn
rauðhöfði en þessar andategund-
ir koma oftast í byrjun apríl.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að stöðva
rekstur stólalyftunnar í Skálafelli í
kjölfar óhappa sem þar hafa orðið.
Bláfjallanefnd og Vinnueftirlit ríkis-
ins funduðu um málið í gær og
ákváðu í samráði við Iþrótta- og
tómstundaráð að stöðva rekstur
lyftunnar tímabundið meðan unnið
yrði að skoðun málsins og lagfær-
ingum.
Akveðið hefur verið að taka til
gagngerrar endurskoðunar þætti er
varða aðstæður, umhverfl, búnað og
vinnuferli við stólalyftuna. Starfs-
menn ÍTR, Bláfjallanefndar og
Vinnueftirlitsins munu vinna að
skoðun málsins næstu daga. Að lok-
inni skoðuninni og að fengnum upp-
lýsingum frá framleiðendum lyft-
unnar verða tillögur til úrbóta, sem
mættu koma í veg fyrir að slík atvik
endurtækju sig, lagðar fyrir Vinnu-
eftirlit ríkisins til skoðunar og
ákvörðun tekin um framhald rekst-
urs lyftunnar í vetur.
Ingvar Sverrisson, formaður Blá-
íjallanefndar, sagði að búið hefði
verið að fara í eins miklar úrbætur
og endurskoðun á lyftunni og talið
var mögulegt. „Við tókum hins veg-
ar ákvörðun um loka lyftunni á
meðan farið yrði gaumgæfilega yfir
alla lyftuna til að ganga úr skugga
um að allt væri í lagi. Þetta er gert í
samvinnu við fulltrúa Vinnueftirlits-
ins. Lyftunni verður lokað þangað
til við komumst að niðurstöðu
ásamt Vinnueftirlitinu. Ég vonast
til að það þurfi ekki að vera nema
nokkra daga,“ sagði Ingvar.
Bláfjallanefnd telur að hægt sé að
ganga vel frá þessum málum með
því að gera ákveðnar lagfæringar á
endastöð lyftunnar og ýmislegt ann-
að.
Fleiri óhöpp hafa komið upp í
Skálafelli en greint hefur verið frá í
fjölmiðlum. Nýlega barst íþrótta-
og tómstundaráði bréf frá Ingunni
Hauksdóttur þar sem hún greinir
frá óskemmtilegii reynslu sem hún
varð fyrir um síðustu helgi þegar
hún festist í skíðalyftu í Skálafellú
Þegar hún ætlaði að renna sér ft'á
stólnum festist úlpa hennar í honum
og féll hún til jarðar. Hún lenti á
skíðunum og slapp án meiðsla. Yfir-
maður á Skálafellssvæðinu tjáði
henni að þessi atburður væri ekkert
einsdæmi.
Morgunblaðið/Yann Kolbeinsson
Helmingaskipti í skaf-
miðadeilu svila
DÓMARI við Héraðsdóm Reykja-
víkur batt enda á skafmiðadeilu
tveggja svila í gær með dómsupp-
kvaðningu þess efnis að annar svil-
anna ætti að greiða hinum helming-
inn af andvirði bifreiðavinnings,
sem kom upp á skafmiða í gos-
drykkjakippu, sem keypt hafi verið
sameiginlega fyrir veislu þeirra
vegna fertugsafmælis beggja á síð-
asta ári.
Bifreiðavinningurinn, að verð-
mæti 1.565 þúsund krónur kom upp
á skafmiða dóttur annars svilanna
daginn fyrir afmælisveisluna. Seldi
hann bifreiðina og keypti aðra ódýr-
ari og lagði mismuninn inn á sinn
reikning. Hann neitaði að skipta
vinningnum jafnt á milli sín og hins
svilans á þeim forsendum að skaf-
miðinn hefði verið gefinn dóttur
hans skilmálalaust. Hefði hún ein
því verið eigandi skafmiðans og
heimild hennar til bifreiðarinnar
verið klár og skýlaus.
Svilinn sem ekki vildi una þessum
málalyktum byggði kröfu sína fyrir
dómi á því að öll innkaup til afmæl-
isveislunnar hefðu verið sameigin-
leg. Þannig hefðu svilarnir orðið
eigendur að öllum aðföngum í jöfn-
um hlutföllum. Það hefði m.a. verið
tilgangur þess að halda afmælis-
veisluna sameiginlega, þ.e. að deila
kostnaði við hana. Stefnandi hefði
því einnig orðið eigandi að vinnings-
miðanum.
í niðurstöðu dómsins kom fram
að stefnda hefði ekki tekist að
sanna að stefnandi hefði afhent
dóttur stefnda skafmiðann til eignar
eða að atvik hefðu að öðru leyti ver-
ið með þeim hætti að líta mætti svo
á að hún hefði eignast miðann.
Stefndi var því dæmdur til að
greiða stefnanda 782 þúsund krónur
auk 150 þúsund króna í málskostn-
að.
Atlanta á lista yfir 500 framsæknustu
fyrirtækin í Evrópu
„Viðurkenning
fyrir starfs-
fólk okkar“
Edinborg, Morgunblaðið.
ÞÓRA Guðmundsdóttir, sem á og
rekur Flugfélagið Atlanta ásamt
manni sínum Ai'ngrími Jóhannssyni,
tók í gær við viðurkenningu fyiúr að
vera frumkvöðull ársins meðal
kvenna í Evrópu, á heiðurssamkomu
sem haldin var á lokakvöldi árlegrar
ráðstefnu Europes 500 þar sem
helstu frumkvöðlar Evrópu í at-
vinnulífinu koma saman og haldin er
í Edinborg í Skotlandi.
Atlanta er nú í annað skipti á lista
yfir 500 framsæknustu fyrirtæki í
Evrópu. Fyrir ári lenti fyrirtækið í
29. sæti listans en hefur nú færst
upp í það 20.
Þóra og Arngrímur sögðu í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðsins
að þessi viðurkenning væri hvatning
fyrir þau að gera enn betur á þessu
ári og í framtíðinni. „Verðlaunin eru
einnig og ekki síst viðurkenning fyr-
ir starfsfólkið okkar og starf þess í
fyrirtækinu," sögðu þau Þóra og
Arngrímur. „Við störfum í þessu
evrópska umhverfi og erum mjög
glöð yfir því að vera á meðal þessara
fyrirtækja á listanum sem flest hafa
gengið í gegnum það sama og við,
hafa rekist á sömu vandamálin við
uppbyggingu fyrirtækis síns.“
Raðað er á listann úr milljónum
fyrii'tækja úr allri Evrópu þar sem
tekið er tillit til starfsmannaaukn-
ingar og veltuaukningar. Hjá Atl-
anta vinna nú um eitt þúsund starfs-
menn um allan heim og þar af eru
um 40 til 50% íslensk.
Alls eru sjö íslensk fyrirtæki á
lista Europes 500 í ár og tóku for-
svarsmenn þem-a, sem mættir voru,
við verðlaununum á heiðurssamkom-
unni í gær. Hin fyrirtækin eru
Tölvumyndir, sem lenti í 11. sæti sé
tekið mið af hlutfallslegri veltuaukn-
ingu á tímabilinu frá 1992-1997 en
veltan hafði aukist um 6.728%.
Einnig eru á listanum 10-11, NTC,
sem rekur nokkrar tískuverslanir i
Reykjavík, Tæknival, Nóatún og
Össur sem nú er á listanum þriðja
árið í röð. Efsta fyrirtækið á listan-
um í ár er breska bílavarahlutafyrir-
tækið The Finelist Group og í öðru
sæti er pizzufyrirtækið Teiepizza,
sem í dag ræður yfir 37% af skyndi-
bitamarkaðnum á Spáni en fyrirtæk-
ið hefur vaxið gríðarlega frá stofnun
árið 1987 og var tvö síðustu ár í efsta
sæti listans.
Samkvæmt úttekt Europes 500
hafa fyrirtækin á listanum skapað
alls 200 þúsund ný störf á síðustu
fimm árum sem er meira en allt til-
tækt vinnuafl á íslandi.
Arangur íslensku fyrirtækjanna
og staða þeirra á listanum vakti
mikla athygli á ráðstefnunni í Edin-
borg og að sögn Ingólfs Bender,
hagfræðings Samtaka iðnaðarins,
sem hefur aðstoðað Europes 500 við
röðun á listann lesa menn það út ur
þessu að á íslandi blómstri frum-
kvöðlamenning.
yÉg býst við að nokkuð sé til í því-
Á Islandi eru skilyrði fyrh- framsæk-
in ung fyi'irtæki nokkuð góð miðað
við það sem almennt gerist í Evrópu
og þessi árangur ætti að verða öðr-
um íslenskum fyrirtækjum hvatning
á þessu sviði,“ sagði Ingólfur Bend-
er.
• ...............................
FERMINGARTILBOÐ
4.480.-
Verðáður 5.680,-
Undur veraldar er safn
greina um raunvísindi ætlað
almenningi. Níu raunvísinda-
menn rita um ýmis undur
fræða sinna, allt frá sólum
og svartholum til leitar að
nálum í heystakki.
„ Mikill fengur fyrir alla þá
sem vilja fylgjast með í
heimi fræða og vísinda."
Morgunblaðið
H
m
B
I
Mál og menning
Laugavegi 18 • Simi 515 2500 • Siðumúla 7 • Simi 510 2500
CANTAT3-sæstrengurinn kominn í lag
CANTAT3-sæstrengurinn, sem bil-
aði 21. febrúar norðan við Færeyj-
ar, er nú kominn í lag. Áhöfn kapal-
skipsins Sovereign lauk viðgerð í
gærmorgun og lét strenginn síga
niður á hafsbotn að nýju. í gær voru
gerð svokölluð stöðugleikapróf á
strengnum. Sovereign kom á bilun-
arstaðimi 1. inarz siðastliðinn en
vegna óveðurs þurfti skipið að leita
vars við Færeyjar og tafði vont veð-
ur viðgerðina um u.þ.b. viku.
Á rnorgun, laugardag, munu
starfsmenn Landssímans og fjar-
skiptafyrirtækja í nágrannalöndun-
um hefjast handa við að færa milli-
landasambönd, sem komið var á
varaleið um gervihnetti, aftur yfir á
CANTAT. Gera má ráð fyrir smá-
vægilegum truflunum, einkum á
Internetsambandi við útlönd og á
gagnaflutningslínum, meðan á
flutningnum stendur. Tímasetning-
in er þó valin með það fyrir augum
að sem fæstir verði fyrir óþægind-
um.
Morgunblaðiö/Örn Jdnsson
CANTAT3-sæstrengurinn hífður uin borð í CS Sovereign. Strengur-
inn náðist upp með krækjunni lengst til vinstri og liggur enn í
krækjunni (gildasti strengurinn, með hvítum skáröndum).