Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 30

Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Vetrarloðnuvertíðin mun lakari en í fyrra Aætlað tekjutap um 2,4 milljarðar króna Verð á loðnumjöli frá íslandi 1995-99 Pund tonnið, verð í hverjum mánuði 500 Heimsmarkaðsverð á lýsi 1995-1999 Dollarar tonnið, CIF í Evrópu, mánaðarlegt 800 VETRARLOÐNUVERTÍÐIN er nú á síðasta snúningi en vertíðin hefur valdið bæði sjómönnum og framieið- endum verulegum vonbrigðum, þrátt fyi-ir að veiðin sé nú þegar orðin nokkuð meiri en á allri vetrarvertíð- inni á síðasta ári. Slæmt ástand á mjöl- og lýsismörkuðum og lélegt hráefni til frystingar hafa valdið því að áætlað tekjutap sjávarútvegsins og þjóðarbúsins í heild nemur um 2,4 milljarðar í samanburði við vertíðina 1998 sem þó þótti í lakara lagi. Aætl- að útflutningsverðmæti loðnuafurða á yfirstandandi vetrarvertíð nemur alls tæpum 4,4 milljörðum króna. Verðmæti Japansloðnunnar á vertíð- inni eru nær helmingi minni borið saman við síðustu vertíð. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær hefur margt orðið þess valdandi að afurðaverð fyrir mjöl og lýsi hefur hríðfallið á fáeinum mán- uðum. Verð á mjöltonni er nú komið niðm- í um 250 sterlingspund eða um 29 þúsund íslenskar krónur. Verð fyrir tonnið af lýsi er nú um 290 doll- arar eða 21 þúsund krónur. Til sam- anburðar má nefna að á fyrstu þrem- ur mánuðum síðasta árs fengust að meðaltali um 460 sterlingspund fyrir mjöltonnið eða um 54 þúsund ís- lenskar krónur. A sama tíma var verð á lýsistonni um 720 dollarar eða um 51 þúsund krónur. Þess ber þó að geta að mjög lítið hefur verið selt af mjöl- og lýsisafurðum á þessu lága verði það sem af er þessu ári og birgðasöfnun hérlendis því verið mikil. Frá áramótum hafa samtals borist á land hérlendis rúmlega 600 þúsund tonn af loðnu, þar af rúm 37 þúsund tonn af erlendum skipum. Ætla má að úr þessum afla sé nú þegar búið að vinna um 102 þúsund tonn af mjöli og um 24 þúsund tonn af lýsi. Miðað við markaðsverð eins og það er í dag nemur verðmæti mjölfram- leiðslunnar því um 2.950 milljónum króna en verðmæti lýsisframleiðslu vertíðarinnar um 504 milljónum króna. A vetrarvertíðinni 1998 var landað um 425 þúsund tonnum af loðnu hjá íslenskum fiskimjölsverk- smiðjum. Þegar upp var staðið eftir síðustu vetrarvertíð höfðu verið framleidd hér á landi um 72.273 tonn af mjöli og um 16.897 tonn af lýsi. Þá var markaðsverð afurðanna hinsveg- ar mun hærra og má þannig áætla verðmæti mjölframleiðslunnar um 3.902 milljónir króna en lýsisfram- leiðslunnar 862 milljónum króna. Samtals hefur því verðmæti þessara afurða numið um 4,7 milljörðum króna á síðustu vetrarvertíð, saman- borið við um 3,5 milljarða á yfir- standandi vertíð. Mun minna fryst af Japansloðnu A yfirstandandi vetrarveitíð hafa verið fryst um 7.800 tonn af loðnu fyrir Japansmarkað og skiptist magnið nánast jafnt milli framleið- enda Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna og íslenskra sjávarafurða. Loðnufrystingin hefur gengið afar illa á vertíðinni, einkum vegna þess hve loðnan er smá og aðeins hefur verið framleitt í smæstu stærðar- flokkana, eða 60 stykki í kílói eða meira. Engin loðna hefur verið fryst á Japan undanfarna viku og má bú- ast við að frystingunni á þessari ver- tíð sé lokið. A vetarvertíðinni 1998 voru fryst um 20 þúsund tonn af loðnu fyrir Japansmarkað og var áætlað verð- mæti þeirra um 1,1 milljarður króna. Auk mun minni framleiðslu hefur verð á smæstu Japansloðnunni lækkað nokkur frá fyrra ári. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins fást að meðaltali um 68 krónur fyrir kílóið af þeirri loðnu sem nú hefur mest verið fryst af á vertíðinni. Því má áætla að heildarverðmæti Japansloðnunnar á vertíðinni nemi alls um 530 milljónum króna eða nær helmingi minna verðmæti en á síð- ustu vertíð. Ekkert hefur verið fryst af loðnu fyrir Rússlandsmarkað á þessari vertíð vegna efnahagsástandsins þar í landi en alls voru fryst um 20.867 tonn af loðnu á Rússland á síðasta ári. Áætlað útflutningsverðmæti Rússalandsloðnunnar á síðustu ver- tíð var um 674 milljónir króna. Það sem af er loðnuvertíðinni hafa verið framleidd um 2.000 tonn af loðnuhrognum. Eftir því sem næst verður komist fást um 190 krónur fyrir kílóið af hrognunum og því má áætla verðmæti framleiðslunnar um 380 milljónir ki-óna. Á síðasta ári voru flutt út samtals um 2.700 tonn af loðnuhrognum að verðmæti um 425 milljónir króna. Þess ber þó að geta að hluti þess sem flutt var út af hrognum í fyrra var framleiddur árið 1997 en líklega hefur heildarfram- leiðslan á síðasta ári numið um 1.500 tonnum og verðmæti hennar um 285 milljónir króna. Björgólfur Jóhannsson, fram- kævæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. á Neskaupstað, segir vertíðina vissulega hafa valdið vonbrigðum, sérstaklega hvað varði loðnufryst- inguna. Hann segist engu að síður hafa trú á að útvegurinn bregðist við aðstæðum. „Þessi markaður hef- ur löngum verið sveiflukenndur en ég tel að fyrirtækin séu betur í stakk búin til að aðlaga sig aðstæð- um en áður. Eg hef því ekki trú á því að þessi slaka vertíð hafi veru- leg áhrif á rekstur þeirra. Vissulega höfum við séð betri vertíðir og líka lélegri. Veiðin í ár er til dæmis orðin nokkuð meiri en í fyrra,“ segir Björ- gólfur. Kaflar úr bókinni Saga Monicu í blaðinu á sunnudaginn ^XTskdfflaBi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.