Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 47
ölmörgum spurningum fulltrúa á 33. landsfundi S.jálfstæðisflokksins í gær
Nauðsynlegl er að
selja Landssímann
Morgunblaðið/Ásdís
imgönguráðherra, Björn Bjarnason
agismaður annaðist fundarsijórn.
m sjávarútvegsmál
jald á
ækkað
Bjaraason, Sverrir Hermannsson og
slíkir ágætismenn. Þeim datt ekki í
hug að láta einhverja allt aðra fá kvóta
en þá sem var verið að stoppa af. Það
var engin önnur leið fær. Þetta verða
menn að hafa í huga,“ sagði Davíð.
Hann vék einnig að afleiðingum
framsalsins og sagði: „Við vitum að í
fyrra kerfí átti sér stað gríðarleg sóun
og offjárfesting. Menn voru hver í
kapp við annan að hlaða að sér tækja-
búnaði til þess að ná sem mestu. Sókn-
arstýring hefði líka leitt til svipaðrar
niðurstöðu. Framsalið leiddi til hag-
ræðingar, minnkun fjárfestingarkostn-
aðar og minni sóunar. Þetta var það
sem gerðist. Ég hef lent í því á fundum
að vera spurður að því hvemig okkur
ftnnist að vera alltaf að úthluta kvóta.
Ég hef verið í ríkistjóm í bráðum átta
ár og ég hef aldrei úthlutað kvóta. Við
emm ekki í því. Þetta em verk manna
frá 1983-84. Þess vegna finnst mér
skrítið þegar vinur okkar Sverrir Her-
mannsson er að tala um að við sem hér
sitjum séum að úthluta mönnum kvóta
sem menn græða á. Hann gerði það og
ég er ekki að saka hann um það. Þeir
fundu enga aðra leið þessir ágætu og
vitm menn sem þama vora til staðar,“
sagði Davíð.
Pólitísk handstýring ef
framsalið er afnumið
Þorsteinn Pálsson sagði mikilvægt
að hafa í huga þann efnahagslega ár-
angur sem náðst hefði. „Framsalið er
það mikilvægt atriði í því að sjávarútr
vegurinn er rekinn á markaðsgrand-
velli. Ef við afnemum framsalið þá
þurfum við að fara í pólitíska hand-
stýringu á þróun sjávarútvegsins. Ég
trái því ekki að menn vilji fara inn á þá
braut. Við höfum náð þeim árangri að
sókn í mikilvægustu fiskistofna er nú
helmingi minni en hún var áður. Það
þýðir að tilkostnaður er miklu minni
og afli á hverja sóknareiningu hefur
aukist um 40-70% eftir veiðarfærum.
Það þýðir að við erum að fá meira inn í
þjóðarbúið og það hefur verið forsend-
an íyrir því að við höfum getað haldið
stöðugleika, við gátum horfið frá stöð-
ugum gengisfellingum og tryggt auk-
inn kaupmátt.
Varðandi greiðslur fyrir veiðirétt-
indin þá er það svo að það hafa verið
lögð gjöld á úthlutaðar aflaheimildir
frá upphafi, sem hafa miðað að því að
standa undir tilteknum, afrnörkuðum
kostnaði. I upphafi var þetta lítið eða
bara helmingurinn af kostnaði við eft-
irlit með veiðunum. Nú er allur kostn-
aður af eftirliti með veiðunum greidd-
ur af veiðigjaldi og ýmis annar kostn-
aður. Ég veit ekki hversu margar
þjóðir það eru í heiminum sem leggja
gjöld á veiðiréttinn. Ég hygg að það
sé hægt að telja þær á fingrum ann-
arrar handar. Ég veit að Nýsjálend-
ingar, sem miða gjöld á veiðiréttinn
við það að standa undir afrnörkuðum
kostnaði ríkisins, leggja á hærri gjöld
en við. En ég veit ekki um aðrar þjóð-
fr sem leggja hærri gjöld á veiðirétt
en við gerum. Langsamlega flestar
þjóðir eru að leggja skatt á einstak-
linga og fyrirtæki og flytja yfir til út-
gerðanna. Það er hin almenna regla í
sjávarátvegi í heiminum. Við skeram
okkur því algerlega úr í þessu,“ sagði
Þorsteinn.
Niðurstaða auðlindanefndar
geti leitt til sátta
„Ég held að þetta gjald hafi verið að
breytast, það hefur aukist smám sam-
an eftir því sem kerfið hefur styrkt út-
gerðina og samkeppnisstaða hennar
hefur styrkst. Þetta er aðal-útflutn-
ingsatvinnuvegurinn og við verðum
alltaf að horfa á það fyrst og fremst að
sjávarátvegurinn hafi sterka sam-
keppnisstöðu og þar á meðal gagnvart
fyrirtækjum, sem njóta niðurgreiðslu
og styrkja. Ég sé fyrir mér að þetta
gjald geti, eftir því sem sjávarátveg-
urinn styrkist, smám saman hækkað
og er sannfærður um að það muni ger-
ast.
Nú er að störfum nefnd sem er að
fjalla um með hvaða hætti á að fara
með nýtingu náttúraauðlinda á sjó og
landi og ég bind miklar vonir við að
starf þeirrar nefndar geti leitt til nið-
urstöðu og sátta um þessi mál. Það er
líka mikilvægt að við höfum í huga að
þessi vandamál lúta ekki bara að nýt-
ingu sjávarauðlinda. Við þurfum að
nýta margar aðrar auðlindir þessa
lands og sömu grundvallarsjónarmið
hljóta að koma upp í þeim efnum. Þess
vegna er þetta starf mjög mikilvægt
og brýnt að það sé vel tÚ þess vandað.
Eg hef trá á því að á grandvelli þess
geti menn náð saman og náð sáttum í
þessum efnum,“ sagði Þorsteinn.
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
sagði á landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins í gær að nauðsynlegt væri að
einkavæða Landssímann. Hann gæti
ekki þrifist almennilega í óbreyttu
rekstrarformi í þeirri alþjóðlegu
samkeppni sem framundan væri.
Hann sagði einnig að selja ætti ríkis-
bankana.
Geir sagðist telja að mikill árang-
ur hefði orðið af einkavæðingar-
stefnu ríkisstjómarinnar. Það væri
lengi búið að ræða um þessa hluti og
talsverðan tíma hefði tekið að vinna
einkavæðingarhugmyndunum fylgi.
Sala á ríkisfyrirtækjum hefði eflt
ýmis fyrirtæki sem ekki hefðu verið
talin lífvænleg. Einnig hefði ríkið
losað um fjármagn sem hægt hefði
verið að nota til annarra þarfa.
„Ég tel að það eigi að halda áfram
að einkavæða ríkisbankana. Það er
einnig sjálfsagt mál að ljúka við að
einkavæða Fjárfestingabanka at-
vinnulífsins. Sama á við um Lands-
Ráðherrar
spurðir
FJÖLDI fólks fylgdist með og
tók þátt í fyrirspurnum til ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins á
landsfundinum í gærmorgun.
Sjávarútvegsmál voru fyrirferð-
armikil í þeirri umræðu, en víða
var komið við og má einnig nefna
byggðamál, skattamál, hvalveið-
ar, jarðgöng, Reykjavíkurflug-
völl, forystu í ríkissljórn eftir
kosningar og ýmislegt fleira.
Fjármálaráðherra
vill einkavæða
bankana
símann. Hann mun ekki geta þrifist
almennilega í nútíma umhverfi í því
formi sem hann er í dag, að því er ég
tel, vegna þeirrar alþjóðlegu sam-
keppni sem við honum blasir á
næstu árum,“ sagði Geir.
Geir var einnig spurður um einka-
væðingu í mennta- og heilbrigðis-
kerfinu. Hann sagði að þessi rekstur
væri allt annars eðlis en sá rekstur
sem væri eingöngu rekinn á við-
skiptalegum forsendum. Hann sagð-
ist ekki telja skynsamlegt að einka-
væða skóla- eða heilbrigðiskerfíð.
Það mætti hins vegar vel hagnýta
sér kosti einkarekstursins á þessum
sviðum þar sem því yrði við komið.
Það hefðu komið fram ágætar hug-
myndir í þessa veru. Hann minnti á
SKIPTAR skoðanir komu fram á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins um
staðsetningu flugvallar í Reykjavík.
Halldór Blöndal samgönguráðherra
sagði að ef Reykjavíkurflugvöllur
yrði lagður niður og innanlandsflugið
fært til Keflavíkur væri veruleg
hætta á að flug frá Höfn í Hornaffrði,
Akureyri og Sauðárkróki legðist af
því að ferðlagið frá flugvellinum til
Reykjavíkur yrði það langt að hag-
stæðara væri að fara þessar leiðir ak-
andi.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson
vakti máls á uppbyggingu Reykjavík-
urflugvallar og spurði hvort skyn-
samlegt væri að verja fjármunum til
endurbyggingar vallarins. Staðsetn-
ing vallarins væri óheppileg og beti-a
væri að nota svæði til íbúðarbyggðar.
Halldór sagði óhjákvæmilegt að
gera endurbætur á flugvellinum, en
viðhald hans hefði lengi verið van-
rækt. Hann sagði að endurbæturnar
kostuðu 1,5 milljarða, sem væru ekki
miklir fjármunir í samanburði við
að við hefðum góða reynslu af einka-
skólum hér á landi og eins af einka-
rekstri á heilbrigðissviði þar sem
hann ætti við.
Breytingar á
N ámsgagnastofnun
Bjöm Bjamason menntamálaráð-
herra var spurður hvað væri því til
fyrirstöðu að Námsgagnastofnun
væri einkavædd. Hann svaraði því til
að nýlega hefði Skólavörubúðin ver-
ið seld. Einnig hefðu verið miklar
breytingar gerðar á Námsgagna-
stofnun. Hún fengi núna aukið fjár-
magn til að framleiða námsefni. Fyr-
irhugað væri að bjóða út verkefni á
vegum stofnunarinnar í auknum
mæli.
Hann sagðist hins vegar telja
óskynsamlegt að leggja Náms-
gagnastofnun niður á sama tíma og
unnið væri af auknum krafti að gerð
námsefnis með hliðsjón af gerð nýrr-
ar námsskrár fyrir grunnskóla.
ýmsar aðrar framkvæmdir í sam-
göngumálum.
„Ég hygg að það sé alveg ljóst að
ef sú ákvörðun yrði tekin að leggja
Reykjavíkurflugvöll niður og flytja
innanlandsflugið til Keflavíkur vær-
um við um leið að leggja niðm- flug til
staða eins og Hafnar í Homafírði,
Akureyrar og Sauðárkróks því að
ferðalagið væri orðið það langt. Það
borgaði sig að fara alla leið akandi,"
sagði Halldór.
Ragnar Magnússon benti á að
hægt væri að leysa þetta mál með því
að leggja járnbraut frá Hafnarfirði til
Keflavíkur, en ferðalag með henni
myndi taka sjö mínútur. Halldór
sagði að kostnaður við lagningu slík-
ar járnbrautar og kaup á vögnum
yrði óyffrstíganlegt fyrir okkur.
Jóhann Friðfinnsson frá Vest-
mannaeyjum lýsti yfir eindregnum
stuðningi við afstöðu Halldórs Blön-
dals og sagði að það væri mikið hags-
munamál fyrir landsbyggðarfólk að
flugvöllurinn yrði áfram í Reykjavík.
kstri Ríkisútvarpsins
ekki starfað
ttum lögum
kröfur sem neytendur gera. Hitt er annað mál að það
þarf að fara mjög varlega í breytingar. Ég hef áhuga á
að beita mér fyrir samstarfi við kaupmenn um hægfara
þróun eða tilraunir til að gera þarna breytingar. Við
verðum að gera okkur grein fyrir að þarna koma önnur
sjónarmið að málinu, sjónarmið sem lúta að stefnu í heil-
brigðismálum. Það er ekki eingöngu þeir sem nota áfengi
hér á landi sem færa fram skynsamleg rök í þessu máli.
Ég vil samt gera breytingar á núverandi kei’fi. Ég
held t.d. að við komumst ekki hjá því að setja sölu bjórs
og léttvíns í takmörkuðum mæli til kaupmanna,“ sagði
Geir.
Einfalda þarf almanna-
tryggingakerfíð
Fríða Einarsdóttir spurði Geir hvort ekki mætti ein-
falda almannatryggingakerfið og spara í rekstri Trygg-
ingastofnunar ríkisins.
„Ég held að það sé rétt að það megi betrumbæta ýmis-
legt í rekstri þessarar stóru stofnunar. Það urðu harðar
umræður í þinginu í gær um bætur öryrkja. Það kemur
fram í skýrslu forsætisráðherra, að þetta kerfi er gríðar-
lega flókið. Það á ekki að þurfa að vera svona. Það á ekki
að þurfa sérfræðinga í þessum frumskógi til þess að fólk
geti náð fram rétti sínum. Þetta er allt of flóldð og viða-
mikið kerfi. Það er grandvallaratriði að fólk sem er í sömu
stöðu og á sama rétt fái sama kaup. Þarna eru margir
bótaflokkar og það hafa komið fram tillögur, m.a. frá
Sjálfsbjörgu, um að einfalda þetta kerfi. Ég tel sjálfsagt
að fara ofan í það mál.
Ég vil hins vegar vara við því sem kemur frá vinstri
vængnum og því uppboði sem á sér stað milli Samfylking-
ar og Vinstra framboðsins um þessi mál. Ég er ansi
hræddur um að þar sé verið að hugsa um flefra heldur en
hagsmuni bótaþeganna, eins og við urðum t.d. vör við í
þinginu í gær,“ sagði Geir.
Samgönguráðherra um flutning
Reykj avíkurflugvallar
Flug til Akureyr-
ar og Sauðár-
króks legðist af