Skírnir - 01.01.1907, Blaðsíða 22
22
Darwinskenning og fraraþróunarkenning.
orpnar nálega ætíð smávægilegar; minnist hann á snöggar
breytingar, telur hann þær undantekningar einar, er ekki
eigi neinn teljandi þátt i myndun nýrra tegunda; hana
hyggur hann stafa af því að smábreytingar safnist hægt
og stöðugt fyrir. En undir eins og Uppruni tegund-
a n n a kom út; komu fram tvær mótbárur gegn þessari
skoðun, og gengu líffræðingar, sem framþróunarkenning-
um fylgdu, fram hjá þeim í fyrstu, af því að þeir héldu
að hugmyndin um framþróun væri nátengd hugmyndinni
um smábreytingar og samfeldar breytingar. En þessum
mótbárum hefir sí og æ verið hreyft síðan, og nú aðhyll-
ast margir fyigismenn framþróunarkenningarinnar þær.
í fyrsta lagi, ef einstaklingsafbrigðin eru mjög lítil, þá
veita þau enga teljandi yfirburði í lífsbaráttunni og ein-
staklingarnir með afbrigðunum eru þá ekki lífvænlegri en
hinir. I öðru lagi gjörir þessi kenning ráð fyrir samfeldri
milliliða röð tegunda á milli. En langoftast finnum vér
ekki þessa samfeldu milliliða röð. Hvert jarðlag er auð-
kent af sérstökum tegundum dýra og jurta, sem haldist
hafa nálega óbreyttar meðan það jarðlag var að myndast
og eru skýrt aðgreindar frá þeim tegundum dýra og jurta
er finnast í jarðlögunum fyrir neðan og fyrir ofan. Ef-
laust ber það við að umskiftin eru ekki svo snögg og svo
stórfeld, og hefir de Launay getið þess í jarðfræðisriti
sínu. En hann játar sjálfur að yfirleitt hafi forngróðrar og
forndýra-rannsóknir undanfarinna fjörutíu ára fremur
styrkt en veikt þá trú að í jarðlagi hverju væru óumbreyttar
tegundir jurta og dýra, sundurleitar við þær sem finnast
í öðrum jarðlögum. Framfarir jarðfræðinnar hafa brugð-
ist þeim vonum sem Darwiningar studdu við þær, og
virðist örðugt að samþýða þær kenningunni um samfeldar
smábreytingar. Loks hefir sú kenning fengið nýtt áfall
af reynslu De Vries; reynsla hans hefir sýnt svo ekki
verður véfengt snögga ummyndun plantna einnar tegundar
í plöntur annarar tegundar, í einni einustu kynslóð. Er
nú þessi snögga breyting, þessi s t ö k k b r e y t i n g, við
einstakling bundin og verður síðan almenn, er hún gengur