Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1907, Page 53

Skírnir - 01.01.1907, Page 53
Kembrandt. 53 hans væru háar og fegurðartilfmningin næm, þá skapaði hann samt myndir, sem eru í fullu samræmi við liinn verulega heim, og þó að ímyndunaraflið væri mikið, þá eru þó öll málverk hans í eðli sínu lilutsjónir. Hann hikar jafnvel ekki við að mála það sem Ijótt er, ef honum einungis þykir það einkennilegt og áhrifa- mikið. Þegar hann tekur sér fyrirmynd, er hann ekki að hugsa um að andlitsdrættirnir séu fallegir, heldur að svipurinn sé hreinn og að fegurð sálarinnar komi í ljós. Franskur rithöfundur liefir sagt um hann »að hann að eins hafi séð fegurð sálarinnar og lýti líkamans« (des beautés morales et des laideurs physiques). Hann er skáld, sem yrkir með línum og litum, og' enginn hefir sem hann kunnað að nota töframagn ljóssins. Hann leikur sér að því, að láta snöggan sólargeisla falla inn í náttmyrkrið, eða láta birtuna læðast um og blandast skugganum. Það er þessi skifting ljóss og skugga, sem á lista- málinu er kölluð »clair-obscur« og engum hefir tekist að sýna eins og Rembrandt. ÞÓRA FRIÐRIK880N.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.