Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1909, Page 77

Skírnir - 01.01.1909, Page 77
Ritdömar. ÞORVALDUR THORODDSEN: ÆFISAGA PJETURS PJETURSSONAR, dr. theol., biskups yfir íslandi. Reykjavik 1908. 8° (IV-)-349 bls.). I útlönduœ er það gamall og góður siður að minnast 100 ára afmælis látinna merkismanna. A síðustu árum er venja þessi einnig farin að ryðja sór til rúms hér á landi. Er það vel farið, því að bæði glæðir það áhuga hintiar upprennandi kynslóðar á sögu vorri og högum, og ef maðuriun, sem minst er, hefir verið mikill yfir- burðamaður, má vel vera, að dæmi hans örvi vel gefna og stórhuga unglinga til eftirbreytni, enda eru þess mörg dæmi. En þegar ræða er um slík minningarritsem æfisaga Pjeturs bisk- ups er, þá er ekki að leyna því, að það er mikill vandi að leysa þau vel af hendi. Slfk rit fjalla einatt um menn, sem í lifanda lífi hafa hlotið meira lof og last hjá samtíðarmönnum sínum en fólk flest, ekki sízt ef þeir hafa látið mörg mál til sín taka og skipað einhvern öndvegissess í þjóðfélaginu. Verður þá oft vandratað meðalhófið, að segja hvorki of nó van. Synd er að segja, að höf. hafi slegið slöku við að viða að sór efni í rit þetta. Heimildir þær sem hann skírskotar til eru svo mýmargar og fjölbreyttar, að mestu furðu gegnir, að honum hefir unnist tími tiJ, auk mikilsverðra annara ritstarfa, að tína þær sam- an. En á hinn bóginn dylst engum þeim, sem gefur sór tóm til að kryfja heimildir höf. og brjóta til mergjar, að sumar þeirra ber miklu fremur að telja til dagdóma og palladóma en til áreiðanlegra heimilda. Allvíða hefir höf. prentað upp langar tilvitnanir úr öðrum rit- um, blöðum eða bréfum, sem hefðu stundum mátt missa sig eða ættu að minsta kosti fremur heima í »Viðaukum«. Slíkar tilvitn- anir og ýmsir útúrdúrar höf., — enda þótt þeir sóu í sjálfu sér einkar fróðlegir, svo sem 1/singin á kennurum Bessastaðaskóla (19— 23. bls) og kaflarnir úr »Arsriti presta í Þórnesþingi« (47.—Sl.bls.), sem Pjetur biskup er ekki höf. að —, lengja bæði bókina töluvert

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.