Fjölnir - 01.01.1844, Síða 23
23
lurulum eru prestar bundnir víð einhvern ltúskap, og á
íslandi verður ekki ö8ru við komið; |)ví engin brauð eru
{>ar svo inntektamikil, sizt upp til sveita, að prestar geti
lifað eingöngu á tekjura sínum, og sumstaðar hafa þeir
við lítið annað að styðjast enn bújarðir sínar; þeim er
það því mjög áríðandi, vegna tímanlegrar velgengni sinnar,
að þeir sitji staðina vel; þeir þurfa ekki að vanrækja
vísindi e5a verk köllunar sinnar fyrir það, þó þeir hafi
gætur á því, að allt fari í sniðum á heimilinu, eða þó
þeir líti eptir því, að verkum sje reglulega niður skipað;
það ætti miklu fremur að vera þeim sjálfum hvíldarstund,
sem svo er varið, frá andlegri áreynslu, og gefa þeim nýtt
þol og fjör til embættisiðna sinna; þetta her líka einkutn
að á sumrum, en vefurnir eru hýsna langir og mart má
á þeim iðja og að hafast og auðgast að fróðleik og vís-
indum; það verður líka að auka virðingu sóknarfólks á
prestum sínum, ef þeir líta eptir heimilisháttum sínum
með forsjá og reglusemi, og ganga á undan öðrum í því
með góðu ep'tirdæmi. 3>að er líka til þess ætlandi af
prestum, að þeir sjeu svo samvizkusamir, að líta ekki
eingöngu á sinn hagnað í þessu efni, heldur gæta þess
einnig, að eptirkomendur þeirra og brauðin sjálf hafa af
því ómetanlegan halla, ef staðirnir eru níddir niður. J>ó
ekki væri nú annað að hafzt, enn að staðirnir væru vel
hirtir, ræktun túris og engja kostgæfilega áfram haldið
og hlunnindi jarðanna sfunduð með stjórnsemi og fram-
kvæmd, þá sannfærir reynslan oss um það, að bújarðirnar
mundu batna talsvert, þó það yrði ekki allt í einu; en
langtum bráðari og betri endurbót mundu þær fá við það,
ef túnin yrðu umgirt og sljettuð, og ræktuð að því skapi
vel, ef vatni yrði veitt á engjar og af þeim aptur á hagan-
Iegum tímum ársins, og ö!l þau gæði sfunduð, sem hver
jörð hefur til aö bera ; en til þessa þarf, bæöi að prestar
fái þekkingu á eðli jarða sinna, kunnáttu til að verja
þekkingunni jörðunum til bóta, áræði til að hagnýta sjer