Fjölnir - 01.01.1844, Síða 53
53
að hún sje dæmd til eilífra kvala, vekin frá augliti drott-
ins og frá dýrð veldis hans.
Af þessum riikum öllum þykjumst vjer skyldir til
að skora á yður, að þjer ekki einungis hakliö sjálfum yður
frá þessum hinum skaðvænu drykkjum, heldur að þjer
einnig stuðlið til þess með dæmi yðar í íjelagskap við
aðra, að allir menn gjöri hið sama. Ef að neyzla áfengra
drykkja yrði eins mikil í næstu 30 ár, og verið hefur í
seinustu 30 ár, þá mundi ríki vort verða við það fyrir
svo miklu tjóni, að næmi 5,026,000,000 ríkisdala, og meira
enn 1,000,000 af samlöndum vorum mundu hniga fyr í
gröfina enn ella. í>ar að auki mundi heil milión af drykkju-
mönnum vaxa upp, og þaðan mundi þessi bölvaða ástríða
ganga í erfðir til barna jþeirra, og þaðan til ókomirina
kynkvísla, þangað til þessi brennandi eldur, er enginn fær
slökkt, mundi að síðustu eyða öllu mannkyninu ; þar að
auki mundi 5,000 manndrápsmanna fæðast á einum manns-
aldri, og meir enn 1,500,000 glæpa verða framdir. Og
þótt drykkjumennirnir fjölguðu ekki úr því sem nú er, og
áfengir drykkir styttu ekki líf þeirra nema um 10 ár, og
þeirra, er hóflega drekka, einungis um 5 ár, og þó svo
teldist til, að einungis fimmti hver væri drykkjumaður, þá
mundu þó missast 32,400,000 ára af Iífinu, og það einmitt
af þeim kafla lífsins, þegar maðurinn er hezt fallinn til
allra ágætisverka, og hæfastur fyrir sjerhverja dyggð, sem
hefur áhrif á líf vort eptir dauðann.
En hversu miklar og ógurlegar sem þessar óheillir
eru; hversu óyggjandi sem það er, að ef tilefni þeirra
helzt við, munu þær haldast við meðan heimurinn stendur,
þá er þó auðvelt að rýma þeim hurtu. Ef allir þeir, er
þrek hafa í sjer til þess, hafna öllum áfengum drykkjum,
þá mun óhófsemin með öllum svívirðingum þeim, er hún
hefur í togi með sjer, hverfa smásaman með öllu, og
bindindi með öllum þeim hlessunum, er henni fylgja, ríkja
um allan heim. Ef allir þeir, cr hóflega drekka , tækju