Fjölnir - 01.01.1844, Side 56
56
jeg frjáls maður, og ætla jeg muni líka verSa f)aö fram-
vegis; ekki vil jeg samt skuldbinda mig til ftess, svo jeg
eigi kost á að verða þræll aptur, ef f)að kynni að detta
í mig”. Bindindisfjelögin eru ekki stofuuð í þeirri veru,
að svipta nokkurn mann frjálsræði viljans með skuldbind-
ingu þessari, eða neyða nokkurn mann til að bergja aldrei
á áfengum drykkjum, hvernig sem á stendur, heldur er sá
tilgangurinn, að þeir bindi allir með sjer fjelagskap að
sjálfvilja sínum, er ekki bergja á áfengum drykkjum, og
álíta f)að nauðsynlegt sakir barna sinna og landsmanna.
En færi svo, að einhverjum f)ætti sem skyldur sínar við
guð, sjálfan sig eða aðra menn, byði honum að bergja á
áfengum drykkjum eptir það harin hefði reynt bindindi
hlutdrægnislaust, á hann frjálst að ganga úr fjelaginu og
láta má nafn sitt af skrám þess. En það fer Iíkt hjer
eins og þegar maður losast úr einhverri annari ánauð, að
því lengur sem maður hefur verið frjáls, og því frjálsari
sem maður er, því kærra verður manni frelsið, og því
síður mun maður vilja hverfa aptur í hina fomu ánauð.
J>að er og dæmalaust, að nokkur af þeim , er hingað til
hafa gengið í bindindisfjelög, og verið stöðugt í þeim í
tvö ár, hafi eigi sannfærzt um, að honum heilsaðist miklu
betur, síðan hann hætti að bergja á áfengum drykkjum,
enn áður; og vjer teljum það fullvíst, að ef slíkar tilraunir
væru gjörðar víða og haganlega, mundi öllum reynast svo.
En fremur segja sumir: “Til hvers eiga konur að ganga
í bindindisljelög” ? Sje það satt, að guðsorð hafi eins
blessunarík áhrif á huga konunnar og á huga karlmannsins,
og gjöri hana jafn-hæfa honum til allra góðra hluta , þá
Iilýtur sjerhvert Qelag, er hvortveggja taka þátt í, bæði
konur og karlar, að hafa meiri áhrif á aiþýðu, og einkum
á ungmenni og börn, enn væri konum varnað fjelagskapar.
Með því bindindisfjelög þau, er vjer leggjum nú allt kapp
á að stofna, miða einkum til þess, að varðveita börn vor
frá ofdrykkju, eigum vjer þá síður að færa oss í nyt dæmi