Fjölnir - 01.01.1844, Page 64
64
og voru flestir bændur í Hóla-sókn gengnir í það áður
enn honum barst brjef vort í hendur. I Húnavatnssýslu
hefur sjera Daníel Halldórsson gengið í Iög og lið með
oss, og með honum þessir menn: Bjarni Bjarnarson,
bóndi á Vigdísarstöðum; Björn Pálsson á Syðri VöIIum;
Jorsteinn Jorsteinsson, bóndi á Ytri Kárastöðum; Gísli
Gíslason, bóndi á Litla Osi; Björn Guðmundsson, bóndi
á Ytri Völlum; Guðimrndur Bjarnarson á sama bæ; Gísli
3>órðarson bóridi á Tjarnakoti; Eggert Halldórsson á Mel-
stað. I Dalasýslu var stofnað hófsemdarfjelag í fyrra
sumar, og gekkst Jón, sonur sjera Jorleifs prófasts í
Hvamrni, fyrir því; fjelag þetta var í vetur orðið all-fjöl-
mennt, og er ekki örvænt, að það greiði götu fyrir full-
kominni bindindi. í Árnessýslu stofnaði sjera Sigurður
G. Thórarensen í Hraungerði með nýári fjelag í sóknum
sínum, er hann kallaði “afneitunar fjelag áfengra drykkja
Hraungerðis og Laugardæla safnaða”, og ritaði sjálfur lög
þess í 6 greinum, er hann sendi öðrum prestum i sýslunni,
og skoraði um leið á þá, að hver þeirra um sig viidi
reisa viðlíkar skorður við ofdrykkju í sóknum sínum. Sjera
jþórður Árnason í Klausturhólum í sömu sýslu hefur gjört
sjer allt far um aö leiða sóknarmenn sína til hófsemdar,
og hefur stofnað hófsemdarfjelag, og eru gengnir í það
28 menn í Klausturhóla-sókn, og 26 í Búrfells-sókn. í
skólanum hafa að eins 2 ritað nöfn sín á boðsbrjef vort:
Eiríkur Jónsson frá Borg, og Oddur Sveinsson frá Hruna,
og eru það að vísu færri enn vjer höfdum búizt við. Sjera
Eyólfur Kolbeinsson, prestur á Eyri í Skutulsfirði, befur
gengið í lög með oss, og fylgt þessu máli svo rækilega,
að þegar póstur fór að vestan, var hann þegar búinn að
fá 21 mann í sóknum sínum til að rita nöfn sín á boðs-
brjef vort, og eru það: Magnús Árnason, bóndi á Tungu
í Bolungarvík; Árni Magnússon, vinnupiltur á sama bæ;
Árni Árnason, bóndi á Meiri Hli'ð; Magnús Árnason á sama
bæ; Magnús Guðmundsson, bóndi á Tröð; Jón Guð-