Fjölnir - 01.01.1844, Side 73
73
komin gjöf, að sá er enginn menntaður í raun og veru,
sem ekki metur jrað mikils og vill fara vel með það; og
þegar einhver þjóð gjörir lítið úr því, j)á n>á eiga j)að
víst, að allur hennar hagur er fjarlægur því, sem hann
ætti að vera, eins og líka reynslan sýnir, hvar sem að er
gáð; því ein framförin verður jafnan annari samfara. Málið
er þar að auk höfuð-einkenni hverrar þjóðar, og |)að er
ekki einskis vert, hvort því fer fram eða aptur, hvort það
er ljótt eöa fagurt, og fegurð málsins er ekki komirt undir
því einu saman, hvernig það er gjört af guði og mönnum
fyrir öndverðu; því ekkert vatn er svo tært, að eigi spillist,
þegar það rennur í saurugum farveg — en farvegur nráls-
ins er hugur þjóðarinnar, sem talar j)að og ritar. A hverju
er þá von af máli voru ? Jijóðerni vort, sem einkanlega
er fólgið í málinu, hefur verið troðið undir fótum, og
hörmulega saurgað og svívirt, margar aldir í sífellu. Hversu
lengi á slíku fram að fara ? Hversu lengi eigum vjer að
m'ðast á sjálfum oss og öllu því, sem oss ætti að vera
dýrmætast hjer í heimi? Og hvort er fallegra og inndælla,
karlmannlegra og betra til afspurnar, að láta alla hluti
liggja í þessari deyfð og þessum andlei*- svefni, og geta
aldrei verið ánægður við sjalfan sig, ellegar að rísa upp,
hver með öðrum, og leggja á }>að allan hug og allan mátt,
að bæta sífeldlega þjóðarhag vorn, og vita svo hvað vjer
komumst? En engin endurbót er líkamleg í raun og
veru, þó það kunni að sýnast svo, heldur andleg. Auður
og fullsæla fjár, hreysti og heilsa, fjör og frjálsleikur lík-
amans, skyn og skýrleiki, dáð og dyggð, traust og trú
hugarins, og í stuttu máli: hverskonar frægð og fremd,
yndi og unað — allt er þetta komið undir andanum. Andi
hvers einstaks, hversu vel sem hann er af guði gjör,
verður að engum þrifnaði, nema hann njóti annara að, og
taki birtu at hugum annara. En hver er þá þessi geisli,
sem hugur sendir hug ? Hvert er þetta ljós, degi bjartara
og sólu varmara, sem skín yfir lönd og lýði, og sýnir