Fjölnir - 01.01.1844, Page 123
1-23
í Húnavatns-sýslu . (56jarðir, lM81ulr.j lOhdr.afgjald 12rdd.87sk.
í Skagaljarðar— ..(42 — 954 — )............. 10 - 16 -
í Vaðla — . . (84 — 1796 — )..................... 12 - 89 -
í Jjingeyjar-sýslum (45 — 775 — )........... 16 - 18 -
í Múla — . (22 — 238 — )........... 23 - 56 -
í Skaptafells — .(81 — 1058 — )........... 14 - 52 -
í Gullbringu-sýslu . (22 — 385 — )........... 10 - 77 -
í Snæfellsness — .. (91 — 1186 — )........... 12 - 90 -
í Barðastr.s.oglsaf. (23 — 301 — )............ 7 - 77 -
1 Stranda —..(21 — 236 — )........ 7 - 3 -
3?ó jarðirnar kumii nú að vera lítið eitt dýrra Ityggðar
eptir gæðum á eiiunn stað, enn öðrum , gefur j)ó hverjum
manni að skilja, að það muni valda mesta mismuninum
að jarðirnar eru svo ólíkt metnar til dýrleika. En allir
sjá þá líka, hvílík rangindi leiðir af því, að binda kosn-
ingarrjettinn alstaðar við sama dýrleika, {)ví með því móti
heimta menn í rauninni tvöfalt og þrefalt meiri jarðeign af
mönnum í einni sveit enn annari, og })að er j)ó ósann-
gjarnlegt, þegar þeir menn eru ekki að öðru leyti svo
miklum mun óhæfari til kosninga enn hinir, og hver þorir
þó t. a. m. að segja, Austfirðingar sjeu þrefalt óhæfari
til kosningar enn Strandamenn. 3>að Ieiðir enn fremur af
að hinda kosningarrjettinn við fasteign, að í Vestmanna-
eyja-sýslu verður ekki nema einn kjósandinn, af því kon-
ungur á allar eyjarnar, svo enginn fær þar kosningarrjett
fyrir jarðeign, og af því jarðir eru þar allar ómetnar til
dýrleika, svo enginn fær heldur kosningarrjett fyrir æfifestu
á jörð.1 Kjósendur verða þar því þeir einir, sem eiga
svo dýrt hús á verzlunarstaðnum, sem tiltekið er, og
verður það, eptir því, sem vjer höfum heyrt, ekki nema
einn maður danskur, sem varla mun vera Qár síns full-
ráðandi sem stendur. 3?ar að auki mætti geta þess, að
') Vjer sleppum hjer að minnast á, hvort það hafi verið
sanngjarnlegt cða ekki, að veita ábúcndum á konungsjörðum, sem
hafa æfifestu fyrir jörðinni, kosningarrjett, en ekkí þeim sem hafa
æfifestu fyrír bændaeign.