Gefn - 01.01.1873, Side 86
86
eða hann sé illur frá eilífð, er ekki kennt svo menn viti.
Hinir sjð plánetu-andar sköpuðu manninn, en sú sköpun
skreið; þá kendi faðirinn í bijösti um hann og sendi
honum lífsgneista (wso/ia, anda): einúngis sá gneisti kemur
aptur til ljóssríkisins (nÁypwfiá). Einn af hinum 7 öndum
er skapari heimsins og guð gyðínga; hann er útstreymdur
af Aeónaheiminum, og er því ekki illur andi, af því aiaivsc
eru frá hinu góða frumeðli; en þó er haun of máttlítill
til þess að verja mennina á móti djöflinum. Hinn óþekkti
faðir sendir því Kiist, hugann (voúv), mönnunum til hjálpar.
— Áhángendur Satúr'nínus lifðu mjög stránglega, máttu
aldrei giptast og aldrei eta kjöt.
Basilídes hét annar gnostiskur kennari, og lifði um
sama leyti og Satúrnínus. Hann kendi um aðstreym-
íngu andanna að frumguðinum, og eptir hans kenníngu
er ættartalan þannig:
Ssoc áxazovójj.a(jroc (hinn ónefnanlegi)
I
voTjc (hugur)
i
Xóyoc (orð)
I
fpóvrjacc (hyggindi)
I
_______aoipía (vizka)
Sóvapcc (vald). Scxacoaóvrj (réttvisi). ecprprj (friður).
þessir 7 andar (o: að fráreiknuðum frumguðinum) skapa
heiminn og mynda hina fyrstu áttúng (oySoát) i sameiníngu
með frumverunni. þessir sjö geta af sér aptur sjö og svo
framvegis í sífellu, eptir tölu himnanna (7), eða eptir því
sem aðrir segja, eptir tölu andanna (365 o: tala ársdaganna).
þ>essi andaheimur heitir Abráxas (Afipa$ac eða afipaaa%,
sem merkir eptir bókstöfunum 365). Allir andar eru ímynd
hins ónefnanlega, en því daufari, sem þeir eru honum fjær.
Hinir sjö seinustu (o: fjærstu guði og þess vegna daufustu)