Gefn - 01.01.1873, Blaðsíða 18
18
að þetta hljóti allt að vera innlent í löndunum, af því menn
finna »verksmiðjur« smiðanna, það er að skilja: hálfsmíðuð
vopn og málmstykki bráðin og verkfæri — en hverr getur
sannað að smiðirnir hafi verið innlendir? Að minnsta kosti
er það víst, að málmarnir eru ekki upp runnir í danskri
jörðu, það segir jarðarfræðin oss; en að ógrynni vopna og
alls konar hluta hafi verið flutt inn í löndin með herskap
og víkíngu, það segja sögurnar oss. Skáldskapur og söguvísi
er sú hin einasta menntun her sem um er að tala, og þetta
vaknaði með landnámi Islands og heyrir einúngis Islandi til.
það eru tvenns konar hlutir, sem gera það líklegt, að
menntun sjálfra Norðurlandaþjóða hafi allt fram að kristni
verið mjög lítil, nefnilega allurandinn í frásögnunum og sá
hinn algjörlegi skortur á öllum listaverkum og skrautlegum
og sterkum byggíngum: þetta tvennt kemur ætíð fram hjá
hverri vel menntaðri þjóð og það er einkenni enna elstu
fornaldarþjóða, Assýra, Inda, Egipta, Grikkja og Eómverja.
Sögurnar nefna raunar opt og tíðum hallir og sali í enni
elstu fornöld, en þetta eru tómar hugmyndir, sem koma
fram af því orðin eru til í málinu -- annars má kalla hvert
hús »höll« eða »sal«, hvort það er stórt eða lítið, svo þar-
með er ekkert sagt. Enar verulegu byggíngar hér á Noröur-
löndum voru bæir og skálar, stórar timburstofur, líklega
lauslega upp settar, hjá heldri mönnum; það getur ekki
verið merkileg byggíng, sem fáeinir menn geta svipt þakinu
af, eins og gert varvið skála Gunnars; og að bæir álslandi
(sem voru öldúngis eins og á Norðurlöndum) í fornöld hafi
verið lágir og lagaðir eins og þeir eru enn, má sjá á Njálu,
þar sem á bls. 119 stendur að fénaður hafi komist upp á
þá og bitið gras af þakinu og veggjunum. Aðsetur kon-
únganna í Noregi eru kölluð »bæir«, það voru stórbæir eins
og enn eru á Islandi, sumir kannske nokkuð stærri. Stein-
hús voru mjög sjaldgæf, en allt var af timbri, og er því nú
fallið og horfið, þar sem byggíngar annara þjóða standa enn,
þvi þær voru úr steini. Rúnasteinarnir og legstaðirnir eru